26. nóv 12:15 – 12:45

Hádegistónar FÍH á spænsku

Aðalsafn | 2. hæð

Í hádeginu þann 26. nóvember næstkomandi munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, Ástrún Friðbjörnsdóttir og Hildur Jónsdóttir flytja nokkur vel valin lög á spænsku. Hildur og Ástrún eru báðar spænskumælandi og ákváðu því að velja einungis lög á spænsku. Um undirleik sér Jón Ingimundarson. 

Ástrún Friðbjörnsdóttir er söngkona og lagahöfundur með bakgrunn í klassískum söng en er um þessar mundir að mennta sig í rytmískum söng. Hún hefur gefið út nokkur lög á síðustu árum, meðal annars stuttskífuna Sandkorn árið 2023. Ástrún hefur sungið ýmiss konar tónlist, til dæmis flamenco, klassík, jazz og popp. Síðustu tónleikar sem Ástrún setti upp voru tileinkaðir tónlist úr bíómyndum spænska leikstjórans Pedro Almodóvar.

Hildur Jónsdóttir er söngkona og lagasmiður úr Kópavogi. Hún hóf tónlistarnám ung í Tónlistarskóla Kópavogs, þar sem hún lærði á fiðlu og klassískan söng. Haustið 2023 tók hún upp þráðinn að nýju í Tónlistarskóla FÍH og stundar þar nám í rytmískum söng á framhaldsstigi. Hildur hefur undanfarið verið að syngja með hljómsveitinni Banda Borealis, sem flytur tónlist á spænsku og sendi nýverið frá sér lagið Litlu hlutirnir sem er fáanlegt á öllum helstu streymisveitum.

Fjórða árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs.

Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.


Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
21
nóv
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
21
nóv
13:00

Jólasprettikort 

Aðalsafn 1. hæð
23
nóv
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
24
nóv
25
nóv
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
25
nóv
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
25
nóv
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
25
nóv
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað