03. des 20:00 – 21:00

Haltu mér – slepptu mér: lestur og bókaval ungmenna

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.

Lestur og bókaval ungmenna
Jón Geir Jóhannsson, sérfræðingur frá Nexus, ræðir við foreldra um lestur og bókaval unglinga eins og það birtist þeim í Nexus.  Hvað eru þau að lesa, hvað höfðar til þeirra og að hverju leita þau?  Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar eins og TikTok og Instagram  haft á lestur og bókaval og hvernig foreldrar geta reynt að styðja  við lestur barna og unglinga.

Jón Geir Jóhannsson – sérfræðingur og trommuleikari
Jón Geir er trommuleikari í hinu vinsæla bandi Skálmöld og sérfræðingur hjá Nexus. Nexus hefur lengi vel verið leiðandi á sviði myndasagna, vísindaskáldsagna og fantasía og stórjókst útgáfa þess háttar efnis á íslensku með tilkomu Nexus.

Önnur erindi í Haltu mér slepptu mér koma inn á málefni á borð við karlmennskuhugmyndir, miðlalæsi og kvíða ungmenna.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

24. september 2024, kl. 20:00
Miðlalæsi: Algóritminn sem elur mig upp
Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands, Skúli Bragi Geirdal, heldur erindi um miðlalæsi og samfélagsmiðlanotkun ungmenna. Skúli fer yfir þau atriði í stafrænu umhverfi sem ber að varast auk þess að gefa góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum. Erindið byggir á niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu.

22. október 2024, kl 20:00
Karlmennskuhugmyndir og orðræða ungmenna
Þorsteinn V. Einarsson, kennari og kynjafræðingur, fjallar um skaðlegar karlmennskuhugmyndir, orðræðu ungmenna, algóritma samfélagsmiðla og hvernig er hægt að skapa og styðja við jákvæða karlmennsku.

12. nóvember 2024, kl 20:00
Kvíði ungmenna
Berglind Brynjólfsdóttir, sálfræðingur hjá Sálstofunni, ræðir um einkenni kvíða, hvað hægt er að gera til að aðstoða ungmenni með kvíða og forvarnir gegn honum.

7. janúar 2025 kl. 20:00
Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni
Dr. Erla Björnsdóttir fer yfir mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

23
okt
01
nóv
08:00

Skrímslaratleikur

Aðalsafn 1. hæð
01
nóv
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
01
nóv
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
03
nóv
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
04
nóv
07
okt
04
nóv
05
nóv
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
05
nóv
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
05
nóv
12:15

Leslyndi | Kristín Helga Gunnarsdóttir

Aðalsafn | ljóðahorn
06
nóv
10:00

Skynjunarleikur

Aðalsafn | 1. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán
8-18
Þri
Lokað
mið-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán
13-18
Þri
Lokað
mið-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán
8-18
Þri
Lokað
mið-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán
13-18
Þri
Lokað
mið-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað