Eiríkur sendi nýverið frá sér ritið Alls konar íslenska: Hundrað þættir um íslenskt mál á 21.öld sem vakið hefur mikla athygli. Meginþræðirnir í umfjöllun Eiríks eru gildi tungumálsins í menningu okkar, að tungumálið sé fyrir okkur öll, ekki útvalda og nauðsynlegt sé að umræða um málfar fólks og tungumálið sjálft einkennist af jákvæðni og umburðarlyndi.
Eiríkur Rögnvaldsson er prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands og einn helstu forvígismanna íslenskrar máltækni. Hann hefur verið óþreytandi við að vekja athygli á stöðu íslenskunnar og efla skilning á tilbrigðum og fjölbreytileika tungumálsins og mikilvægi þess í menningu okkar og samskiptum.
Menning á miðvikudögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum þar sem boðið er upp á fjölbreytt erindi, listamannaleiðsagnir og tónleika. Ókeypis er á alla viðburði í viðburðaröðinni.