Í þessari smiðju lærum við að gera einfalt origami jólatré og smærra origami sem hentar vel sem pakkaskraut. Boðið verður upp á pappír í smiðjunni svo hægt sé að spreyta sig, smiðjan hentar byrjendum jafnt sem reynsluboltum.
Hægt verður að glugga í bækur til þess að fá frekari hugmyndir um hvað sé hægt að gera.
Leiðbeinandi er Guðrún Helga Halldórsdóttir.
Guðrún Helga Halldórsdóttir er formaður íslensk-japanska félagsins á Íslandi. Hún kynntist japönsku pappírsbroti fyrst fyrir 10 árum þegar hún fór til Kurobe í Japan sem hluti af ungmennaskiptum Lions og hefur verið forfallinn aðdáandi Origami allar götur síðan.
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og öll velkomin.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu og Salnum.