04. feb 12:15 – 13:00

Leslyndi | Vilborg Davíðsdóttir

Aðalsafn | sviðið

Vilborg Davíðsdóttir verður gestur okkar í Leslyndi miðvikudaginn 4. febrúar kl. 12:15.

Hún fæddist á Þingeyri árið 1965. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði og tók BA og MA próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands. 

Vilborg er einna þekktust fyrir sögulegar skáldsögur sem gerast á  víkingaöld og vekja athygli á aðstæðum og sögu kvenna á fyrri tímum. Fyrsta skáldsaga Vilborgar, Við Urðarbrunn, kom út 1993 og framhald hennar, Nornadómur, árið eftir. Þær voru síðar endurútgefnar undir titlinum Korku saga og hafa verið notaðar við kennslu um árabil. Fyrir þær hlaut hún verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur og Íslandsdeildar IBBY. 

Vilborg fékk tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsögurnar Hrafninn árið 2005, Auði, fyrsta bindið í þríleik hennar um Auði djúpúðgu, árið 2009 og Land næturinnar árið 2023. Hún hefur einnig fengið tilnefningu til Fjöruverðlaunanna, fyrir bækurnar Ástin, drekinn og dauðinn árið 2015 og Undir Yggdrasil árið 2021. Vilborg býr í Elliðaárdalnum í Reykjavík. 

Hún á þrjú börn og tvær ömmustelpur, aðra á himni en hina á jörðu, tíkina Kríu og læðuna Lúnu. Hennar tólfta bók er væntanleg í haust. 

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst.

Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
feb
12:15

Leslyndi | Vilborg Davíðsdóttir

Aðalsafn | sviðið
04
mar
12:15

Leslyndi | Ævar Þór Benediktsson

Aðalsafn | sviðið
08
apr
12:15

Leslyndi | Auður Jónsdóttir

Aðalsafn | sviðið
06
maí
12:15

Leslyndi | Yrsa Sigurðardóttir

Aðalsafn | sviðið

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

21
jan
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
22
jan
12:00

Opni leikskólinn Memmm

Aðalsafn | barnadeild 1. hæð
22
jan
17:15

Skáld hversdagsins | Ljóðaland

Aðalsafn | 2. hæð
22
jan
24
jan
08:00

Ljóðasýning grunnskólanema

Aðalsafn | 1. hæð
23
jan
11:00

Get together

Aðalsafn
24
jan
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
24
jan
13:00

Ljóðakistan

aðalsafn | barnadeild 1. hæð
26
jan
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað