Með einu pappírsbroti opnast endalausir möguleikar. Viltu búa til flugvél, bát, blóm eða dýr – það er allt hægt með einu blaði!
Í þessari smiðju lærum við grunnbrot í japönsku pappírsbroti, origami, og spreytum okkur á að brjóta nokkra einfalda hluti, en ljúkum svo smiðjunni með því að brjóta pappírströnu. Boðið verður upp á pappír í smiðjunni svo hægt sé að spreyta sig, smiðjan hentar byrjendum jafnt sem reynsluboltum.
Hægt verður að glugga í bækur til þess að fá frekari hugmyndir um hvað sé hægt að gera.
Guðrún Helga Halldórsdóttir er formaður íslensk-japanska félagsins á Íslandi. Hún kynntist japönsku pappírsbroti fyrst fyrir 10 árum þegar hún fór til Kurobe í Japan sem hluti af ungmennaskiptum Lions og hefur verið forfallinn aðdáandi Origami allar götur síðan.
Leiðbeinandi: Guðrún Helga Halldórsdóttir, formaður íslensk-japanska félagsins á Íslandi. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.