Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2025

Barnamenningarhátíð fer fram með pompi og prakt dagana 6.-12. maí. Kíktu á dagskrána í heild sinni og ekki láta þig vanta. Þriðjudagur 6.5.2025 Lindasafn 16 – 18 Pappírsblómasmiðja fyrir börn og fjölskyldur Föstudagur 9.5.2025 Salurinn 9 – 12 Leikur að orðum Lögin hans Braga ValdimarsUm 200 leikskólabörn af átta leikskólum í Kópavogi ásamt hljómsveit nemenda […]
Viltu vera memmm? |Barnamenningarhátíð í Kópavogi

Skemmtileg og fjölskylduvæn dagskrá með Memmm Play og Skólahljómsveit Kópavogs fer fram undir berum himni, sunnudaginn 11. maí frá 12:30 – 16:30. Tilefnið er ærið enda Barnamenningarhátíð í Kópavogi í fullum gangi og Kópavogur fagnar sjötugsafmæli sínu á þessum fallega vordegi. Staðsetning er útisvæðið við menningarhúsin í Kópavogi, Bókasafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs, Gerðarsafn og Salinn […]
Sumarblóm á Lindasafni

Sumarblóm í öllum regnbogans litum verða til í þessari notalegu fjölskyldusmiðju í tilefni Barnamenningarhátíðar. Börn og fjölskyldur geta komið saman, mótað litskrúðug sumarblóm úr silkipappír og málað og skreytt ílát fyrir blómin til að hvíla í. Hægt verður að taka blómin og ílátin með sér heim að smiðju lokinni. Smiðjan fer fram á Lindasafni milli […]
Rauðhetta

Silly Suzy og Salla Malla flytja ævintýrið um Rauðhettu á barnamenningarhátíð. Ef þú heldur að þú vitir allt um Rauðhettu þá skjátlast þér! Komdu og hlustaðu á einstakan, öðruvísi og jafnvel svolítið furðulegan flutning þeirrar Silly Suzy og Söllu Möllu á þessu sígilda ævintýri um Rauðhettu, þar sem áhorfendur fá að leika lykilhlutverk. Á meðan […]
Töfraloftbelgurinn | þátttökusýning

Töfraloftbelgurinn er þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri. Listahópurinn Kvistur sýnir 30 mínútna barnasýningu á Barnamenningarhátíð á Bókasafni Kópavogs. Öll velkomin. Frítt inn. Töfraloftbelgurinn er þátttökusýning fyrir börn á leikskólaaldri (0-5 ára) og byggir á samnefndri barnabók eftir Hildi Kristínu Thorstensen sem fjallar um köttinn Prófessor og gömlu konuna Málfríði sem ferðast um á töfraloftbelg og lenda […]
Sumarlestrargleði

Miðvikudaginn 21. maí kl.17.00 ætlum við að hefja sumarlestrarátakið okkar með smá gleði á bókasafninu. Ævar Þór Benediktsson kemur í heimsókn til okkar og les upp úr bókum sínum og verður með lestrarhvatningu fyrir börnin. Síðan munum við kynna sumarlestrarátakið. Hlökkum til að sjá ykkur í sumarlestrarskapi.
Spilaklúbbur | 13-17 ára

Nýr spilaklúbbur fyrir 13-17 ára hefur göngu sína. Klúbburinn hittist vikulega á þriðjudögum kl. 15 í ungmennadeild aðalsafnsins á 3. hæð og spilar saman. Öll ungmenni hjartanlega velkomin!
Konukvöld | Blush

Bókasafn Kópavogs býður konum og kvárum á skemmtilegt konukvöld. Dagskrá: Kl. 17:00 | Íris AnnLeyndardómar tarotspilanna Kl. 18:00 | Símon JónDraumráðningar með Símoni Jóni Kl. 19:00 | Eva Ruza og Vigdís MásdóttirHappdrætti Blush verður á staðnum á konukvöldi Bókasafns Kópavogs með skemmtilegan sölubás þar sem þau kynna sínar vinsælustu vörur. Lukkuhjól og 10% afsláttur. Öll […]
Tröllasmiðja á Barnamenningarhátíð

Komdu og búðu til þitt eigið tröll í tröllasmiðju á barnamenningarhátíð á Bókasafni Kópavogs.
Ævintýrasvæði og best geymdu leyndarmálin | Foreldramorgunn

Hulda Margrét Birkisdóttir og Sævar Helgi Bragason (Stjörnu-Sævar) frá Náttúrufræðistofu munu halda utan um síðasta foreldramorgun annarinnar. Þau munu ræða við foreldra um hvað er hægt að gera í nærumhverfinu hér í Kópavogi sem er frítt og einfalt fyrir fjölskyldur. Hvernig sköpum við gæðastundir með litlum krílum án þess að borga krónu! Hvað er í boði hér í næsta nágrenni […]
Stólajóga

Jógakennarinn Kristín Harðardóttir býður upp á létt stólajóga á mánudögum. Tilvalið fyrir öll að mæta og fara slök inn í vikuna. Viðburðurinn fer fram í Huldustofu á þriðju hæð aðalsafns. Hvorki er þörf á íþróttaklæðnaði né jógadýnu. Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Hádegisjazz FÍH | Sumarsveifla

Annað árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli. Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru […]