Steinn Kárason, garðyrkjumeistari og M.Sc. í umhverfisfræðum, fjallar um sáningu og ræktun algengra og auðræktanlegra krydd- og matjurta. Sagt er frá mismunandi tegundum og afbrigðum og á hvaða árstíma er vænlegast að sá til hverrar tegundar. Þátttakendur fá fræðslu um hvaða ræktunaraðstæður og hvaða aðföng þarf til að ná góðum ræktunarárangri. Fjallað verður um ferlið frá sáningu að neyslu og geymslu, ræktunaraðstæður og aðföng, tegundaval, undirbúning jarðvegs, umhirðu, áburð og vökvun.
Viðburðurinn fer fram í fjölnotasal á 1. hæð aðalsafns. Aðgangur ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.