Ragnhildur Katla Jónsdóttir les úr glænýrri barnabók sinni Ruslaland, gerð til að vekja umræður og áhuga barna á umhverfisvernd.
Sögustundin verður á 1. hæð aðalsafns kl. 10 og aftur kl. 17 og er opin öllum söguþyrstum krökkum og hetjum framtíðarinnar.
Barnabókin Ruslaland er gerð til þess að vekja umræður og áhuga barna á umhverfisáhrifum neysluvenja okkar. Sagan gerist í heimi þar sem flokkun og umhverfishugsun er ekki til staðar og því er allt að drukkna í rusli. Getur ein manneskja og lítil planta dugað til að breyta öllu?
Viðburðurinn er liður í viðburðaröð Skapandi sumarstarfa í Kópavogi.