Herdís L. Storgaard, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna, fjallar um slysavarnir barna og hvernig tryggja má öryggi þeirra á heimilum og í bílum.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu. Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs. Ókeypis aðgangur og öll velkomin.