Bryndís Jónsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla fræðir foreldra leikskólabarna og barna í yngstu bekkjum grunnskóla um fyrstu skref barna í heimi tækninnar. Hvað þarf að hafa í huga og hvað ber að varast? Hvað er hæfilegt og hvernig stuðlum við að jákvæðri notkun?
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin. Sýna minna