Arna Skúladóttir barnahjúkrunarfræðingur segir frá bókinni Veganesti og mataræði barna frá fæðingu til fjögurra ára aldurs. Fjallað verður um innihaldsríka fæðu og ljósi varpað á fjölmargar hliðar foreldrahlutverks og veruleika barna í tengslum við mat.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.