MEKÓ býður upp á fjölbreytta og metnaðarfulla lista- og menningarfræðslu fyrir ungmenni Kópavogsbæjar.
Fyrir frekari upplýsingar og skráningu skólahópa geta kennarar haft samband í meko@kopavogur.is.
Lista- og menningarfræðsla verður í boði fyrir leikskóla, þriðja, fjórða, sjöunda og tíunda bekk haustið 2022.
Nemendum í fyrsta, öðrum, fimmta, sjötta, áttunda og níunda bekk verður boðið að taka þátt í lista- og menningarfræðslu vorið 2023.
Jólakötturinn er mikið ólíkindatól og hver veit hvar hann hefur falið sig? Fræðandi og skemmtilegur jólakattaratleikur á Bókasafninu.
Á Náttúrufræðistofu verður heimur fjölmargra kattategunda kynntur á spennandi hátt og nemendur fá að taka virkan þátt í dagskránni og bregða á leik.
Fimm mínútur aftur og aftur með tónlistartríóinu Pinguins í Gerðarsafni og Náttúrufræðistofu.
Tónleikarnir eru óvenjulegt og náið ferðalag þar sem hljóðið er rannsakað frá ýmsum sjónarhornum.
Gói Karlsson, bæjarlistamaður Kópavogsbæjar, ræðir um sköpun út frá ólíkum sjónarhóli í Bókasafni Kópavogs.
Hvernig má gera góðar sögur enn betri? Fyrirlestur með Gunnari Helgasyni.
Hvernig eru hin ýmsu fjölskylduform? Fyrirlestur með Felixi Bergssyni.
Ein stór fjölskylda söngskemmtun með Gunna og Felixi.
Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur eftir Bjarna Snæbjörnsson og Grétu Kristínu Ómarsdóttur með glænýrri söngleikjatónlist eftir Axel Inga Árnason en verkið hefur fengið einróma lof leikhúsgesta og gagnrýnenda.
Leik- og grunnskólabörn eru ávallt velkomin í heimsókn í menningarhúsin okkar.
Ef þú vilt bóka heimsókn fyrir hópinn þinn þá skaltu hafa samband við viðeigandi stofnun.
Árlega er boðið upp á þrjú sumarnámskeið fyrir krakka á grunnskólaaldri.
Teiknaðu, mældu og pældu í myndlist, arkitektúr, bókum, vegalengdum og náttúrunni í ratleik Menningarhúsanna. Þrautir fyrir alla fjölskylduna á Bókasafni Kópavogs, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Gerðarsafni, útivistarsvæði og Salnum. Ókeypis þátttaka í öllum húsum og hægt að fara aftur og aftur í leikinn enda ekkert eitt svar rétt.
Ratleikur Menningarhúsanna liggur frammi í öllum húsum á íslensku, ensku og pólsku.
Hamraborg 6a
200 Kópavogur
Skráðu þig á fréttabréf Bókasafns Kópavogs:
HAFÐU SAMBAND OG FYLGSTU MEÐ
OPNUNARTÍMI BÓKASAFNS KÓPAVOGS
mán til fös
kl. 8-18
laugardaga
kl. 11-17
mán til fös
kl. 13-18
laugardaga
kl. 11-15*
*lokað á laugardögum í júní, júlí og ágúst
Opið mánudaga – föstudaga
kl. 8-18
Opið laugardaga
kl. 11-17
Opið mánudaga – föstudaga
kl. 13-18
Opið laugardaga
kl. 11-15
Skráðu þig hér á fréttabréf Bókasafns Kópavogs: