Toggle navigation
Viðburðir
Fréttir
Safnið
Hafa samband
Um safnið
Afgreiðslutímar
Sýningar
Gjaldskrá
Fræðsla
Útlánareglur
Innkaupatillaga
Starfsfólk
Gjafabækur
Fundarherbergi
Rafbókasafnið
Prentun með Princh
Leitir.is
Sumarlestur
EN
Aðalsafn
Lindasafn
mán - fös kl. 8-18
lau kl. 11-17
mán - fös kl. 13-18
Útlánareglur
Lánþegaskírteini
Sýna þarf persónuskilríki við móttöku lánþegaskírteinis á Bókasafni Kópavogs.
Lánþegaskírteini eru afhent án endurgjalds en greiða þarf árgjald. Árgjald er samkvæmt gjaldskrá.
Lánþegaskírteini fengið á Bókasafni Kópavogs gefur lánþega einnig aðgang að Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Garðabæjar, Borgarbókasafni, Bókasafni Seltjarnarness og Bókasafni Mosfellsbæjar.
Ávallt skal framvísa lánþegaskírteini þegar safngögn eru fengin að láni.
Einstaklingar yngri en 18 ára, ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá skírteini endurgjaldslaust. Öryrkjar skulu framvísa örorkuskírteini.
Börn yngri en 12 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.
Eingöngu er hægt að fá barnaefni lánað út á barnaskírteini.
Skírteinishafi (eða ábyrgðarmaður hans) getur einn fengið lánað safngögn á lánþegaskírteini sitt og ber hann ábyrgð á öllum safngögnum sem skráð eru á hans nafn.
Lánþegaskírteinið er hægt að nota á öllum aðildarsöfnum Landskerfis bókasafna en greiða þarf árgjald á hverju safni eða safnahópi fyrir sig.
Lánþega ber að tilkynna bókasafninu samstundis ef skírteini glatast. Gjald fyrir nýtt skírteini í stað glataðs er samkvæmt gjaldskrá.
Útlán og skil
Megnið af safnkosti Bókasafns Kópavogs er til almennra útlána. Auk hefðbundinna bóka lánar safnið út önnur safngögn á ýmsu formi, t.d. tímarit, mynddiska (dvd), hljóðbækur, borðspil og fleira.
Bækur, hljóðbækur og tímarit eru lánuð út í 30 daga í senn. Þó er nýjasta hefti tímarita að jafnaði ekki lánað út. Mynddiskar (DVD) eru til útáns í 4 daga (kvikmyndir og barnaefni) og 7 daga (fræðsluefni). Raf- og hljóðbækur í Rafbókasafninu eru til útláns í 7, 14 eða 21 dag og hægt er að hafa fleiri en eina bók í einu og eins er hægt að setja inn frátektir á mörgum bókum í einu.
Hægt er að skila safngögnum í báðum útibúum Bókasafns Kópavogs, aðalsafni og Lindasafni eða á samstarfssöfnin Bókasafn Hafnarfjarðar og Bókasafn Garðabæjar. Raf- og hljóðbækur í Rafbókasafninu skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum og því er engin hætta á dagsektum. Hægt er að skila fyrr.
Endurnýja má lán á safnefni einu sinni, á safninu, á leitir.is eða með símtali á bókasafnið. Áminning um skiladag er að jafnaði send til þeirra sem eru með netfang sitt skráð. Bent skal á að það er alfarið á ábyrgð lánþegans að safngögnum sé skilað á réttum tíma.
Sektir og glatað efni
Greiða skal dagsektir af safngögnum safnsins samkvæmt gjaldskrá. Dagsektir reiknast eftir lokunartíma safnsins á skiladegi viðkomandi safngagna. Engar sektir reiknast á raf- og hljóðbækur í Rafbókasafninu.
Það er allra hagur að vel sé farið með safngögn. Glatist eða skemmist safngagn í vörslu lánþega er það á hans ábyrgð og þarf hann að bæta fyrir það með samskonar efni eða greiða andvirði þess, auk dagsekta ef um þær er að ræða. Forráðamenn bera ábyrgð á þeim safngögnum sem börn fá að láni. Bókasafn Kópavogs ber ekki ábyrgð á skemmdum sem mynd- eða geisladiskar í eigu þess geta hugsanlega haft á afspilunartæki utan safnsins.
Bókasafn Kópavogs notar vafrakökur til að tryggja notendum sem bestu upplifun af vefnum.
Lesa nánar