Sumarnámskeið | Stefnumót við rithöfunda – hvernig verður bókin til?

Bókasafn Kópavogs býður skáldum á aldrinum 9 til 12 ára á stefnumót við rithöfunda á sumarnámskeiði í ágústmánuði. Námskeiðið fer fram á aðalsafni 19. – 22. ágúst og stendur frá kl. 13:00 – 16:00 alla dagana.
Krakkarnir kanna bókasafnið, lesa bækur, tala um bækur, leggja drög að sínum eigin bókum, kynnast því hvernig bækur verða til og spjalla við höfunda uppáhaldsbókanna sinna. Flottir höfundar heimsækja hópinn daglega og farið verður í vettvangsferðir í bókaforlög og á Lindasafn.

Námskeiðið hentar öllum krökkum sem hafa gaman af því að segja sögur. Að námskeiði loknu hafa krakkarnir fengið innsýn inn í störf rithöfunda og hafa prófað að skrifa sögur eftir ýmsum aðferðum. Þau æfa sig að vinna bæði saman og sjálfstætt og þjálfa sig í að taka gagnrýni og veita hana. Ekki síður er mikilvægt tækifærið til að lesa bækur, skiptast á skoðunum um þær og læra að umbreyta lestri í sköpunarkraft.
Allar helstu upplýsingar um skráningu er að finna á sumar.kopavogur.is

Þessi frétt birtist áður í Kópavogsblaðinu.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

30
júl
31
júl
06
ágú
07
ágú
12
ágú
17
ágú
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
13
ágú
14
ágú
20
ágú
20
ágú
13:00

Ævintýrasmiðja

Aðalsafn
21
ágú
21
ágú
13:00

Ævintýrasmiðja

Aðalsafn
22
ágú

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað