Skipt verður um gólfefni í barnadeild aðalsafns Bókasafns Kópavogs dagana 5.-14. september og verður hún því lokuð á þeim tíma.
Allir viðburðir verða þó óbreyttir. Frá og með fimmtudeginum 15. september verður barnadeildin opin aftur samkvæmt venjulegum afgreiðslutíma. Finna má úrval af harðspjaldabókum og léttlestrarbókum á 3. hæð á meðan framkvæmdir standa yfir. Við bendum lánþegum einnig á Lindasafn sem hefur gott úrval af barnabókum.