Laust er starf verkefnastjóra fræðslu

Bókasafn Kópavogs óskar eftir öflugum og hugmyndaríkum einstaklingi í starf verkefnastjóra fræðslu, viðburða og miðlunar. Um er að ræða 100% stöðu og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í september. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Verkefnastjóri sér um skipulag og hefur yfirumsjón með fræðslu fyrir börn og ungmenni og móttöku skólahópa á safnið. Hann vinnur að skipulagi viðburða, fjölmenningarverkefnum og kynningarmálum safnsins. Hann situr í viðburða- og kynningarteymi safnsins, auk þess að taka þátt í annarri teymisvinnu innan safns sem utan. Verkefnastjóri vinnur náið með verkefnastjórum fræðslu-, viðburða- og kynningarmála hjá Menningarhúsum Kópavogs, situr í viðburðateymi Menningarhúsanna og tekur virkan þátt í framkvæmd og þróun verkefna. Hann sinnir einnig öðrum verkefnum sem tengjast grunnstarfsemi og rekstri safnsins í samstarfi við aðra starfsmenn, s.s  upplýsingamiðlun og þjónustu gagnvart gestum.
Menntunar- og hæfniskröfur:

Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Reynsla af því að vinna með börnum og ungmennum.
Reynsla af verkefnastjórnun.
Reynsla af markaðs- og kynningarmálum.
Reynsla af vinnu á bókasafni og/eða menningarmálum kostur.
Góð almenn tölvukunnátta.
Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti skilyrði, færni í einu norðurlandamáli og öðru tungumáli s.s. frönsku, spænsku eða arabísku kostur.
Hugmyndaauðgi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Færni til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum og mjög góðir skipulagshæfileikar.
Hæfileiki til að tileinka sér nýja þekkingu.
Metnaður til árangurs og fagmennska í vinnubrögðum.
Jákvæðni í starfi og sveigjanleiki.

Bókasafn Kópavogs var stofnað 15. mars 1953 og er rekið af Kópavogsbæ samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn nr. 150/2012. Meginhlutverk safnsins er fyrst og fremst að bjóða Kópavogsbúum og öðrum aðgengi að þekkingu og stuðla að fjölbreyttri, öflugri og skipulagðri menningarstarfsemi– og fræðslu fyrir samfélagið í heild. Bókasafn Kópavogs hefur það að leiðarljósi að vera í fararbroddi almenningsbókasafna í landinu hvað varðar þjónustu, safnkost og búnað og á safninu starfar samheldinn og öflugur starfsmannahópur sem vinnur að því markmiði.
Bókasafn Kópavogs er hluti af Menningarhúsum Kópavogsbæjar (sjá nánar á menningarhusin.kopavogur.is). Húsin sameinast um ýmiskonar dagskrá s.s. Fjölskyldustundir á laugardögum, Menningu á miðvikudögum, dagskrá fyrir skólahópa og sumarnámskeið fyrir börn. Húsin starfa því bæði sem sjálfstæðar ólíkar stofnanir en einnig sem heild í því skyni að efla samfélagið.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.
Hægt er að sækja um starfið hér.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

09
maí
11:00

Get together

Aðalsafn
10
maí
13:00

Tröllasmiðja

Aðalsafn | 1. hæð
10
maí
15:00

Töfraloftbelgurinn

Aðalsafn | 1. hæð
11
maí
13:00

Sungið fyrir dýrin

Aðalsafn
11
maí
16:00

Rauðhetta

Aðalsafn | 1. hæð
11
maí
11
maí
12:00

Sögustund | Börn lesa fyrir börn

Aðalsafn | 1. hæð
12
maí
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
13
maí
14
maí
16
maí
11:00

Get together

Aðalsafn
19
maí
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun 11. maí
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun 11. maí
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað