Sumardraumar á sautjándanum

Fjölbreytt þjóðhátíðardagskrá í og við Menningarhúsin í Kópavogi. Kynntu þér dagskránna hér.

Draumkennd tónlist, draumafangarasmiðja og ævintýraþrautin Draumaslóð er á meðal þess sem boðið verður upp á 17. júní þegar Menningarhúsin í Kópavogi, ásamt listafólki á vegum Skapandi sumarstarfa í Kópavogi, taka saman höndum um metnaðarfulla og fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa undir yfirskriftinni Sumardraumar á sautjándanum.

Dagskráin stendur yfir frá kl. 13 og fram eftir degi með litríkum uppákomum af öllu tagi í bland við skapandi listsmiðjur fyrir alla fjölskylduna. Hægt verður að búa sér til sína eigin þjóðhátíðargrímu, fá tilsögn í koparvírasmíði og teiknimyndagerð, þræða Draumaslóð og leysa draumkenndan draumaratleik auk þess sem í boði verða alls kyns útileikir, sirkusatriði, sumarjazz, barnaævintýri, trúnóhorn og kvíðagjörningur svo fátt eitt sé nefnt. Ókeypis er á alla viðburði dagsins og opið á Reykjavík Roasters í Gerðarsafni frá kl. 08:30 – 18. Dagskráin teygir sig út í Sundlaug Kopavogs þar sem listafólk á vegum Skapandi sumarstarfs flytur brot úr verkum sínum í rjúkandi heitum potti.

DAGSKRÁ Á ÚTISVÆÐI MENNINGARHÚSANNA

13:00-13:30 & 15:00 – 15:30
Stökkönd VST þeytir draumkenndri tónlist.

13:30
Sirkussýning með loftfimleikum og skemmtikraftaköllum.

14:10
WE ARE NOT KIDS. Rakel Andrésdóttir og Andrés Þór Þorvarðarson, flytja lög úr glænýju barnaævintýri.

14:40
Bambaló, Herdís og Ingibjörg Linnett ásamt Sædísi Hörpu Stefánsdóttur flytja vel valda dægurlagasmelli í tilefni dagsins.

15:30
Húlladúllan glensar í áhorfendum og sýnir sirkushúllaatriði.

FORDYRI SALARINS KL. 17
Sumarjazz á þjóðhátíðardeginum. Margrét Eir og hljómsveit, flytja jazzskotna efnisskrá úr ýmsum áttum.

SKAPANDI SMIÐJUR OG LEIKIR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA FRÁ 13 – 16

  • Draumafangarasmiðja og Náttúrubók Náttúrufræðistofu Kópavogs.
  • Draumaslóð: Ævintýraþraut fyrir alla fjölskylduna.
  • Grímusmiðja ÞYKJÓ með Ninnu Þórarinsdóttur og Bókasafni Kópavogs.
  • Teiknimyndasmiðja KOMIK. Egill Gauti Sigurjónsson og Íris Eva Magnúsdóttir.
  • Koparvírasmíði með Silfursystrum – Gunnhildi Höllu Ármannsdóttur og Sigrúnu Birnu Pétursdóttur.


UPPLESTUR OG UPPISTAND Í REYKJAVÍK ROASTERS, GERÐARSAFNI

13:00-13:15     
Katla Ársælsdóttir flytur hluta úr ljóða- og smásagnasafninu 204 Kópavogur,

13:15-13:30     
Inga Steinunn Henningsdóttir með sérfræðingaspjall.

13:30 – 13:45
Magnús Thorlacius les úr smásagnahefti sínu sem gengur undir vinnuheitinu Mygla í Kópavogi.

15:00-15:15     
Auður Helgadóttir með örsögur um hinseginleika

15:15-15:30     
Sviðslistahópurinn OBB – Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir skoða ljóð  með einmanaleika, lífið, náttúruna og mennskuna í fyrirrúmi.

GJÖRNINGAR OG UPPÁKOMUR Á ÚTISVÆÐI
 – Tómas Óli Magnússon býður upp á málverkagjörning frá 9 – 17- Sædís Harpa Stefánsdóttir rannsakar eigin kvíða og býður upp á gjörninginn „Kvíðahvísl“.- DÝNAMÍK – Margrét Lára Baldursdóttir og Margrét Lóa Stefánsdóttir bjóða gestum að fá sér sæti í „Trúnóhorninu“ og spjalla um vináttuna.
– 
Vegglistahópur Kópavogs, Karen Ýr Sigurbjörnsdóttir, Sindri Franz, Ásdís Hanna Guðnadóttir og Katla Björk Gunnarsdóttir veitir innsýn í vinnuaðferðir sínar.

Í Gerðarsafni verður opið frá 10 – 18 en þar stendur yfir sýningin Hlutbundin þrá og er ókeypis á safnið á 17. júní.

Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa Kópavogs verða opin frá 11 – 17.  Þar standa yfir fjölbreyttar sýningar sem hægt er að njóta auk þess sem listafólk á vegum Skapandi sumarstarfs, þau Katla Marín Stefánsdóttir, Marina Gerða Bjarnadóttir og Atli Pálsson sýna  innsetningar og vídeóverk í tilefni dagsins.

Sundlaug Kópavogs
14:30 – 16Magnús Thorlacius og Katla Ársælsdóttir koma sér fyrir i heitum potti og lesa brot úr verkum sínum.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

27
apr
27
apr
30
apr
01
maí
02
maí
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn
04
maí
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
06
maí
11
maí
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
07
maí
08
maí
08
maí
14
maí
15
maí

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
1. maí
Lokað
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
1. maí
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-Þri
8-18
1. maí
Lokað
fim-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-Þri
13-18
1. maí
Lokað
fim-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað
Consent Management Platform by Real Cookie Banner