Það var mikið um fjör og fíflaskap í bókasafni Kópavogs í dag þegar sýningin Fíflast með fíflum opnaði. Listhópur Hlutverkasseturs, sem er listhópur ársins Lista án landamæra, sýndi verk, bauð upp á söng og gleði í tilefni dagsins. List án Landamæra fagnar nú 20 ára afmæli og sýningin hluti af fjölmörgum viðburðum sem hátíðin býður upp á í ár.
Það er nú ekki oft sem svona mikill fjöldi safnast saman hér á neðri hæð hússins, sagði Lísa Zachrison Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs þegar hún bauð fólk velkomið en mikill fjöldi var á staðnum. Hún ásamt Írisi Stefaníu Skúladóttir, listrænum stjórnenda hátíðarinnar sögðu frá því hversu ánægjulegt samstarfið hefur verið hingað til og vonast til að sem flestir leggi leið sína í Kópavoginn og fíflist aðeins.
Anna Henriksdóttir, myndlistakennari og forsvarskona hópsins sagði frá tilurð sýningarinnar.
“Þemað í ár er fífillinn, hann reynir að laga jarðveginn með því að jafna sýrustigið, sáir sér og vex alls staðar og oft í mjög erfiðum kringumstæðum. Hann er oft fyrsta kærleiksgjöf sem barn gefur foreldri Seigla hans. þrjóska og gleðin er það sem við höfum unnið með hér og minnum á leikur og gleði er leið til geðræktar.,,
Sýningin er opin á opnunartímum bókasafnsins og Gerðarsafns og stendur til 18. október 2023.
Ljósmyndir: Leifur Wilberg Orrason