Breytingar verða gerðar á útleigu fundarherbergja aðalsafns um áramótin.
Huldustofa:
Frá og með 1. janúar verður Huldustofa leigð út án kaffiþjónustu en leigutökum er velkomið að koma með eigin veitingar. Skila þarf Huldustofu eins og komið var að henni.
Holt og Beckmannsstofa:
Frá og með 1. janúar verður endurgjaldslaust að leigja fundarherbergin Beckmannsstofu og Holtið í allt að tvær klukkustundir á dag. Hver klukkustund umfram það er rukkuð samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.