Umhverfisofurhetjan

Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa slá höndum saman í stórskemmtilegu verkefni fyrir börn sem stendur yfir í allt sumar.

Umhverfisofurhetjan er vitundarvakningarverkefni þar sem börn geta leyst fimm umhverfistengd verkefni og fá að því loknu afhent viðurkenningarskjal um að þau séu umhverfisofurhetjur. Einnig fá þau fræ í verðlaun sem þau geta gróðursett heima.

Hægt er að velja 5 af eftirfarandi atriðum, sum þeirra eru verkefni sem öll fjölskyldan vinnur saman, og sum eru árstíðarbundin.

Þegar barnið hefur klárað 5 verkefni getur það komið á safnið og fengið skjalið og verðlaunin afhent annað hvort í barnadeild eða hjá starfsmanni náttúrufræðistofu:

1. Taka bók á bókasafninu um náttúruna og náttúruvísindi t.d. dýr, gróður, himingeiminn og lesa heima eða fá einhvern til að lesa fyrir sig.
2. Skoða vandlega náttúrufræðisýninguna í Náttúrufræðistofu Kópavogs.
3. Fara með einhverjum fullorðnum á endurvinnslustöð eða í grenndargám með flokkað rusl og efni.
4. Plokka, fara með einhverjum fullorðnum og týna upp rusl úr náttúrunni. (Athuga að vera með hanska, og fara varlega og rólega í verkefnið og ræða fyrir fram um að passa sig að taka ekki upp neitt oddhvasst eins og nálar og glerbrot).
5. Fá fjölskylduna sína til að elda eina máltíð úr frystinum.
6. Borða afganga.
7. Fá fjölskylduna til að elda eina grænmetismáltíð (kjöt og fiskvinnsla skilur eftir sig stórt kolefnisfótspor, og það að borða einu sinni í viku grænmetismáltíð er mjög gott fyrir umhverfið)
8. Velja að gefa fremur upplifun eða notaða gjöf í afmælis- eða tækifærisgjöf. Taka virkan þátt í hringrásarhagkerfinu, gefa, selja eða kaupa notaða hluti frekar en nýja.
9. Labba einu sinni eitthvert sem þið farið venjulega á bíl.
10. Búa til pödduhótel í garðinum.
11. Leyfa túnfíflunum að vera í garðinum (ekki tína þá, ekki slá þá) en þeir eru nauðsynleg næring fyrir fyrstu skordýrin á vorin.
12. Planta birkitré (birki er eina skógmyndandi tegundin í íslensku flórunni og birkiskógar eru fjölbreytt vistkerfi þar sem fjöldi lífvera lifir í samlífi hver við aðra.)
13. Umhverfisverkefni að eigin vali

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

23
maí
11:00

Get together

Aðalsafn
26
maí
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
27
maí
28
maí
28
maí
04
jún
08:00

Plöntuskiptimarkaður

Aðalsafn
30
maí
11:00

Get together

Aðalsafn
02
jún
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
03
jún
04
jún
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
06
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
10
jún

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað