Vika 17 er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Hún fer fram í 17. viku ársins en árið 2026 eru það dagarnir 20.-26. apríl. Í tilefni vikunnar verða ýmsir viðburðir tengdir heimsmarkmiðunum á dagskrá bókasafna vítt og breytt um landið. Þema vikunnar þetta árið beinist að heimsmarkmiði 2 Ekkert hungur og því er sérstök áhersla lögð á erindi sem tengjast matvælum.
Hjá okkur á Bókasafni Kópavogs verður fatamarkaður alla vikuna, erindi um lausn á matarsóun með Dóru Svavarsdóttur frá Slow Food á Íslandi, erindi um gámadýfingar með Hlyni Steinssyni og erindi um sjálfbærni í textíl með Ásdísi Jóelsdóttur.
Þá opnum við frískáp við hlið safnsins þann 21. apríl kl. 13:00. Frískápurinn er sameign og hver sem er má skilja eftir og/eða taka matvæli. Markmið frískápsins er að draga úr matarsóun.
Hæg er að kynna sér verkefnið nánar og fylgjast með hér í Facebook-hópnum okkar Frískápur/Freedge | Bókasafn Kópavogs.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Bókasafni Kópavogs og við nýja frískápinn eftir að hann opnar 21. apríl!
Gleðilega viku 17!
Heimsmarkmiðin eru mörg og fjölbreytt. Þau eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þá fela þau einnig í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf. Aðalinntak markmiðanna er jafnframt að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir. Nánari upplýsingar um heimsmarkmiðin má finna á www.heimsmarkmidin.is.









