Umhverfisofurhetjan snýr aftur á Bókasafn Kópavogs og Náttúrusafnið í sumar í þessu vinsæla og stórskemmtilega verkefni fyrir börn, sem stendur yfir allt sumarið, frá 18. maí til 29. ágúst.
Verkefnið er samstarfsverkefni Bókasafns Kópavogs og Náttúrusafns Kópavogs og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um umhverfismál. Börn geta tekið þátt með því að leysa fimm umhverfistengd verkefni, að eigin vali, og fá að því loknu afhent viðurkenningarskjal þess efnis að þau séu umhverfisofurhetjur. Að auki fá þau fræ að gjöf sem þau geta gróðursett heima.
Verkefnin sem valin eru geta verið af ólíkum toga: sum henta einstaklingsvinnu, önnur eru samstarfsverkefni allrar fjölskyldunnar og nokkur eru árstíðarbundin. Þegar barn hefur lokið fimm verkefnum getur það komið á safnið og fengið viðurkenningarskjalið og verðlaunin afhent, annað hvort í barnadeild bókasafnsins eða hjá starfsmanni Náttúrusafns Kópavogs.
Í fyrrasumar tóku fjölmörg börn þátt í verkefninu sem vakti mikla athygli. Verkefnið er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að vinna saman að umhverfisvænni lífstíl, ræða loftslagsmál og umhverfisvernd og ígrunda hvað hver fjölskylda getur gert til að stuðla að heimsmarkmiðunum og vernda jörðina okkar.
Verkefnalisti
Hægt er að velja fimm af eftirfarandi verkefnum:
- Taka bók á bókasafninu um náttúru eða náttúruvísindi, til dæmis um dýr, gróður eða himingeiminn, og lesa heima eða fá einhvern til að lesa fyrir sig.
- Skoða náttúrufræðisýninguna í Náttúrufræðistofu Kópavogs af athygli.
- Fara með fullorðnum á endurvinnslustöð eða í grenndargáma og flokka rusl og endurvinnsluefni.
- Plokka rusl úr náttúrunni með fullorðnum. Athugið: nota hanska, fara varlega og ræða fyrirfram um að taka ekki upp oddhvassa hluti eins og nálar eða glerbrot.
- Fá fjölskylduna til að elda eina máltíð úr því sem er í frystinum.
- Borða afganga.
- Fá fjölskylduna til að elda eina grænmetismáltíð. (Kjöt- og fiskframleiðsla skilur eftir sig stórt kolefnisfótspor og ein grænmetismáltíð á viku getur haft jákvæð áhrif á umhverfið.)
- Velja að gefa upplifun eða notaða gjöf í afmælis- eða tækifærisgjöf og taka þannig virkan þátt í hringrásarhagkerfinu.
- Labba eða hjóla í eitthvert skipti sem venjulega er farið á bíl.
- Búa til pödduhótel í garðinum.
- Leyfa túnfíflum að vera í garðinum (ekki tína þau eða slá) þar sem þau eru mikilvæg næring fyrir fyrstu skordýr vorsins.
- Planta birkitré. (Birki er eina skógmyndandi tegundin í íslenskri flóru og birkiskógar mynda fjölbreytt vistkerfi.)
- Leyst umhverfisverkefni að eigin vali.








