Sumar á safninu

Sumarlestur

Bókasafn Kópavogs hvetur börn á grunnskólaaldri til lestrar í sumarfríinu, líkt og fyrri ár. Sumarlesturinn fyrir 5-12 ára er styrktur af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og hannaður af Blævi Guðmundsdóttur. Sumarlesturinn virkar þannig að börn frá vegabréf þar sem þau hjálpa Gúnda geithafri að komast úr Heimahögunum þar sem ekkert gras er að fá, yfir í Grænuhlíð að leita að grænu grasi til að bíta. Á leiðinni heimsækir Gúndi ýmsa skemmtilega staði og börnin geta komið við á bókasafninu og fengið happamiða til að setja í lukkupott sem dregið er úr mánaðarlega. Börn í Kópavogi fengu sent vegabréf heim, en einnig er hægt að nálgast vegabréf á bókasafninu. Bókasafnið bauð upp á sumarlestrarhvatningu og fékk Ævar vísindamann til liðs við sig. Hann byrjaði sumarlesturinn með pompi og prakt í sól og blíðu.

Sumarlestur unglinga verður einnig í gangi, þar sem unglingum er boðið að skila inn umsögn um lesnar bækur og lenda þannig í potti þar sem dregið er út mánaðarlega gjafabréf í Nexus. Hægt er að skila umsögnum bæði á safninu og vef bókasafnsins.

Umhverfisofurhetjan snýr aftur

Verkefnið er samstarfsverkefni Bókasafns Kópavogs og Náttúrusafns Kópavogs og er ætlað að stuðla að vitundarvakningu um umhverfismál. Börn geta tekið þátt með því að leysa fimm umhverfistengd verkefni, að eigin vali, og fá að því loknu afhent viðurkenningarskjal þess efnis að þau séu umhverfisofurhetjur. Að auki fá þau fræ að gjöf sem þau geta gróðursett heima.

Sumarsmiðjur

Alla miðvikudaga í sumar verða notalegar smiður á aðalsafni og Lindasafni seinnipartinn. Fjölskyldur eru boðnar hjartanlega velkomnar í notalega samverustund.

Sumarkörfur

Hægt verður að fá lánaðar körfur til að leika með á útisvæðinu við menningarhúsin. Hægt er að velja um bílateppi og bíla, lautarferð, eða ýmis útileikföng eins og badminton og snúsnú.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

05
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
09
jún
10
jún
12:15

Hádegisjóga í Huldustofu

Aðalsafn | Huldustofa
10
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
10
jún
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
12
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
16
jún
17
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
17
jún
12:00

17. júní í Kópavogi

Kópavogur
19
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
23
jún
24
jún
16:00

Náttúrulist á Jónsmessu fyrir börn

Aðalsafn | 1. hæð

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað