Á aðalsafni Bókasafni Kópavogs hefur verið opnuð ný og glæsileg sýningaaðstaða fyrir myndlistarfólk í sal á fyrstu hæð safnsins.
Fyrsta sýningin í hinu nýja rými opnaði í síðustu viku en þar sýnir nú Hjördís Henrisdóttir akríl- og olíumyndir. Myndirnar eru allar málaðar á undanförnum tveimur árum en ferill Hjördísar spannar undanfarin áratug. Hjördís hefur sótt fjölda námskeiða í myndlist, bæði innanlands og utan og tekið þátt í samsýningum víða.
„Ég vinn mikið með bláa litinn,“ segir Hjördís á opnunardegi sýningarinnar. „Ég held að það sé vegna þess að ég bý niðri við sjó. Ég hef málað mikið af sjávarmyndum í gegnum tíðina – fugla og slíkt – en hef aðeins fært mig út í eitthvað óræðara undanfarið. En jafnvel þá birtist oft sjórinn, ef línurnar bjóða upp á það.“
Hjördís býr á Kjalarnesi en hefur um árabil verið með vinnuaðstöðu í Auðbrekku í Kópavogi og hefur sterka tengingu við bæjarfélagið, enda talsvert af hennar fólki sem býr hér.
Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 13. október og allir eru velkomnir á opnunartíma safnsins.
Þessi frétt birtist fyrst í Kópavogspóstinum í september 2016