Sigurlaug Jóna Hannesdóttir hefur verið ráðin sem nýr útibússtjóri Lindasafns.
Sigurlaug hefur víðtæka starfsreynslu af menningartengdum störfum og hefur frá árinu 2012 unnið á Þjóðminjasafni Íslands, m.a. sem sérfræðingur í munasafni, ljósmyndasafni og á miðlunarsviði. Hún hefur unnið við sýningagerð, sýningastjórnun, gerð efnis fyrir kynningar og samfélagsmiðla ásamt skráningu í gagnagrunninn Sarp. Árið 2016 tók Sigurlaug við starfi verkefnisstjóra Safnahússins við Hverfisgötu, sem nú
er rekið af Þjóðminjasafninu. Í starfinu stýrði hún daglegum rekstri og hafði umsjón með verkefnum hússins og þjónustu. Var yfirmaður starfsfólks í sýningargæslu og sá um þjálfun starfsfólks, mótaði þjónustustefnu og handbækur. Einnig hafði hún umsjón með viðburðum og dagskrá í húsinu, útleigu á fundarstofum og fyrirlestrarsal og kom að mótun kynningarefnis, dagskrár og markaðssetningar. Sigurlaug hefur komið víða annars staðar við, m.a. starfaði hún sem prófarkalesari, myndritstjóri og söngvari í kór Íslensku óperunnar.
Sigurlaug er með BA próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og MA próf í safnafræði einnig frá Háskóla Íslands. Hún er jafnframt með framhaldspróf í klassískum söng og stundaði í kjölfarið framhaldsnám í Svíþjóð.
Útibússtjóri Lindasafns ber ábyrgð á og stýrir daglegum rekstri Lindasafns, þ.m.t. fjármálum, starfsmannamálum, þjónustu, safnefni, fræðslu og viðburðum, tækjum, tölvum og búnaði. Hann situr í ýmsum teymum og starfshópum innan Bókasafns Kópavogs og fundar reglulega með deildarstjórum. Hann starfar náið með forstöðumanni og tekur virkan þátt í stefnumótunarvinnu og framkvæmd og þróun verkefna. Starfar einnig náið með bókasafnsfræðingi Lindaskóla. Útibússtjóri sinnir öðrum verkefnum sem tengjast grunnstarfsemi og rekstri safnsins í samstarfi við aðra starfsmenn, s.s afgreiðslu, upplýsingamiðlun og þjónustu gagnvart gestum.
Starfið var auglýst í október og voru umsækjendur 34. Sigurlaug var metin hæfust til að gegna starfinu með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til þess samkvæmt starfslýsingu og auglýsingu.