Ragnhildur Katla Jónsdóttir verður með fyrsta opinbera upplesturinn á bókinni Ruslaland sem er myndskreytt barnabók með umhverfisvænan boðskap.
Sögustundin verður á 1. hæð aðalsafns kl. 10 og aftur kl. 17 og er opin öllum söguþyrstum krökkum og hetjum framtíðarinnar.
Viðburðurinn er í samstarfi við Skapandi sumarstörf í Kópavogi
Barnabókin Ruslaland er gerð til þess að vekja umræður og áhuga barna á umhverfisáhrifum neysluvenja okkar. Sagan gerist í heimi þar sem flokkun og umhverfishugsun er ekki til staðar og því er allt að drukkna í rusli. Getur ein manneskja og lítil planta dugað til að breyta öllu?
Verið öll hjartanlega velkomin.