21. jan 17:00

Ljóðstafur Jóns úr Vör 2025

Ljóðstafur Jóns úr Vör verður afhentur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi, þriðjudaginn 21. janúar 2025. Við sama tilefni verða úrslit kunngjörð í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs.

Ljóð, ljúfir tónar, léttar veitingar og góð stemning. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Um Ljóðstaf Jóns úr Vör

Árið 2001 var stofnað til ljóðasamkeppni á vegum Lista- og menningarráðs Kópavogs og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins sem lést 4. mars 2000.

Jón fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000.

Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik.

Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.

Eftirfarandi hafa hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör

2024
Vala Hauksdóttir: Verk að finna

2023
Sunna Dís Másdóttir: Á eftir þegar að þú ert búin að deyja

2022
Brynja Hjálmarsdóttir: Þegar dagar aldrei dagar aldrei

2021
Þórdís Helgadóttir: Fasaskipti

2020
Björk Þorgrímsdóttir: Augasteinn

2019
Brynjólfur Þorsteinsson: Gormánuður

2018
Sindri Freysson: Kínversk stúlka les uppi á jökli

2017
Ásta Fanney Sigurðardóttir: Silkileið nr. 17

2016
Dagur Hjartarson: Haustlægð 

2015
Ljóðstafur ekki veittur 

2014 
Anton Helgi Jónsson: Horfurnar um miðja vikuna

2013
Magnús Sigurðsson: Tunglsljós

2012
Hallfríður J. Ragnheiðardóttir: Triptych 

2011
Steinunn Helgadóttir: Kaf 

2010
Gerður Kristný: Strandir

2009 
Anton Helgi Jónsson: Einsöngur án undirleiks 

2008
Jónína Leósdóttir: Miðbæjarmynd

2007
Guðrún Hannesdóttir: Offors

2006 
Óskar Árni Óskarsson: Í bláu myrkri

2005 
Linda Vilhjálmsdóttir: Niður

2004 
Hjörtur Marteinsson: Hvorki hér né …

2003 
Ljóðstafur ekki veittur

2002 
Hjörtur Pálsson: Nótt frá Svignaskarði

Deildu þessum viðburði

Jón úr Vör

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

14
okt
21
okt
17
okt
31
okt
08:00

Skrímslasmiðja

Aðalsafn
19
okt
11:00

Tala og spila

Aðalsafn
21
okt
13:00

Sófaspjall

Aðalsafn
22
okt
22
okt
11:00

Get together

Aðalsafn
22
okt
20:00

Haltu mér - slepptu mér

Aðalsafn
23
okt
23
okt
17:00

Flóra mannlífs

Aðalsafn
24
okt
31
okt
04
nóv
09
nóv
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað