05. nóv 12:15 – 13:00

Leslyndi | Kristín Helga Gunnarsdóttir

Aðalsafn | ljóðahorn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Gestur Leslyndis í nóvember er sjálf Kristín Helga Gunnarsdóttir.

Kristín Helga er fædd í Reykjavík þann 24. nóvember 1963. Hún er með BA-próf í spænsku og fjölmiðlafræði og hefur skrifað mikinn fjölda barna- og fjölskyldubóka, en hún er m.a. höfundur bókanna um Fíusól sem hefur einnig verið sett upp sem leiksýning, bókanna um Móa hrekkjusvín og Draugaslóðar.

Kristín Helga hefur hlotið Bókaverðlaun barnanna fjórum sinnum, Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur og Fjöruverðlaunin.

Leslyndi hverfist um yndislestur og uppáhaldsbækur. Þjóðþekktir bókaunnendur stíga á stokk og deila eftirlætishöfundum og bókakveikjum með gestum. Ævintýri og ástarsögur, dagbækur og draumráðningar, sígildar sögur og samtímaverk, orðið er frjálst. Viðburðaröðin hefur notið mikilla vinsælda og skapað sér fastan sess undanfarin misseri, þegar fólk flykkist að til að sjá hina ýmsu rithöfunda deila með okkur sínum uppáhaldsbókum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

04
nóv
02
des

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

13
okt
14
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
14
okt
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
14
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
15
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
15
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
17
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
17
okt
13:00

Bókbandssmiðja 

Aðalsafn barnadeild
19
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað