4. maí er alþjóðlegi Stjörnustríðsdagurinn og að því tilefni munu nokkrir vondir kallar úr 501 herdeild keisaraveldisins kíkja í heimsókn til okkar í barnadeild.
Við hvetjum alla stóra og smá til að mæta í Stjörnustríðsbúning og hitta vondu kallana.
„May the fourth be with you,“ eins og þeir segja á Stjörnustríðs-enskunni.








