Töfraheimur ævintýranna

Uppskeruhátíð sögustunda á Bókasafni Kópavogs

Miðvikudaginn 13. maí kl. 16.00 verður sannarlega veisla á aðalsafni Bókasafns Kópavogs, þegar haldin verður uppskeruhátíð sögustunda fyrir yngstu gestina. Tilefnið er eins árs afmæli verkefnisins Töfraheimur ævintýranna, þar sem skynjunarsögustundir fyrir börn á aldrinum 0–5 ára hafa verið þróaðar og haldnar með reglulegum hætti.

Verkefnið hlaut styrk frá Barnamenningarsjóði á síðasta ári og síðan þá hafa farið fram opnar skynjunarsögustundir fyrir fjölskyldur auk þess sem bókasafnið hefur tekið á móti leikskólahópum í hverri viku. „Við höfum séð hvað þessi aldurshópur tengist sögum og bókum vel í gegnum skynjun, leik og þátttöku, það hefur verið ótrúlega gefandi,“ segir Gréta Björg Ólafsdóttir. Eyrún Ósk Jónsdóttir tekur í sama streng og bætir við: „Þetta er leið til að byggja upp jákvætt samband barna við bækur strax frá upphafi.“

Á uppskeruhátíðinni tökum við á móti sérstökum gestum þegar rithöfundarnir Sigrún Eldjárn, Þorvaldur Davíð og Bergrún Íris lesa upp úr bókum sínum fyrir yngstu börnin. Þá verður boðið upp á fjölbreyttar smiðjur í tengslum við sögurnar: teiknismiðju með Sigrúnu Eldjárn þar sem börn geta teiknað og litað uppáhalds sögupersónurnar sínar, sokkabrúðsmiðju tengda Sokkalöbbunum og vináttusmiðju í tengslum við bækur Bergrúnar Íris. Í vináttusmiðjunni eru börn hvött til að velta fyrir sér spurningunni Hvað er vinátta? og svara henni með mynd eða orðum. „Við notum sögur sem inngang að samtali og sköpun, jafnvel með þeim, sem ekki eru komin með vald á tungumálinu enn þá, öll getum við skapað og tjáð okkur í gegnum töfraheim ævintýranna.“ segir Eyrún.

Að auki verður boðið upp á léttar veitingar fyrir gesti.

Viðburðurinn er öllum opinn.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
24
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
26
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
26
okt
27
okt
28
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
okt
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
28
okt
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
17:00

Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Aðalsafn 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað