14. ágú 15:00 – 17:00

Málverkasýning barna í leikskólanum Álfaheiði

1. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

„Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch, flugvélavélmennum og kappakstursbílum“

Sýning á málverkum barna í leikskólanum Álfaheiði

Velkomin á sýningaropnun föstudaginn 14. ágúst kl. 15:00 í Barnadeild Bókasafns Kópavogs, 1. hæð.

Málverk og blönduð tækni, unnin af börnum í leikskólanum Álfaheiði síðastliðið vor. Börnin eru fædd á árunum 2020-2023 og af öllum deildum leikskólans. Viðfangsefni verkanna er náttúra og landslag og voru unnin í kjölfar heimsókna í Safnahúsið þar sem börnin sáu sýningarnar „Viðnám“ og „Stattu og vertu að steini“. Börnin skoðuðu einnig málverk eftir Stórval og Etel Adnan, en bæði unnu þau einfaldar landslagsmyndir byggðar upp af 3-4 línum sem skipta upp myndfletinum.

Tilgangurinn verkefnisins er að skapa aðstæður þar sem börn geta kannað og þróað sjálfstjáningu sína og öðlast sjálfstraust til að vinna myndrænt úr þeim viðfangsefnum sem þau eru að fást við. Verkin voru unnin undir handleiðslu Unu B. Sigurðardóttur, listgreinakennara. Áhersla var á hæglæti við vinnuna og að gefa börnunum tíma og rými til að gleyma sér í sköpunarferlinu og við það að kanna efniviðinn og gera tilraunir. Börnin höfðu ýmsan efnivið til að vinna úr; málningu, ljósmyndir af fuglum, sand, steina, lím og glimmer.

Verkefnið var styrkt af Þróunarsjóði leikskóla Kópavogs

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
24
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
26
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
26
okt
27
okt
28
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
okt
16:30

Myndaspjall

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
28
okt
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
28
okt
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
28
okt
17:00

Höfundaheimsókn | Íris Ösp

Aðalsafn 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað