Hamraborg Festival aldrei verið glæsilegri

Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Þetta árið er hátíðin haldin í sjötta sinn og stendur hún yfir dagana 28. ágúst – 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af myndlistarsýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir. 

Ár hvert sprettur list úr öllum krókum og kimum hverfisins, og býðst íbúum sem og gestum og gangandi að kanna og fagna listinni í öllum sínum myndum.  Það er auðvelt að rekast á listaverk á ferðum sínum um svæðið, svo sem við hversdagslegar erindagjörðir á borð við matarinnkaup en einnig geta gestir kosið að fylgja korti af hátíðarsvæðinu og upplifa dagskrána í heild sinni. Hátíðin er sköpuð í nánu samstarfi við nærsamfélagið og mörg verkanna eru í samtali við arkítektúr, sögu eða daglegt líf á svæðinu. Í gegnum árin hefur listin dreifist um menningarhús, búðarglugga, kaffihús, skrifstofur og almenningsrými Hamraborgar, á borð við Catalinu, Gerðarsafn, EuroMarket, Polo Vape Shop og Bókasafn Kópavogs..  

Hátíðin verður opnuð föstudaginn 28. ágúst með tónleikum og fögnuði, í framhaldi af því fer fram Gjörningakvöld á Gerðarsafni. Listasýningar og útilistaverk eftir innlent sem erlent listafólk verða aðgengileg almenningi alla hátíðina. Í dagskránni verður einnig boðið upp á fjölbreytta viðburði og fjölskylduvænar listasmiðjur sem höfða til ólíkra aldurshópa.  

Allt í allt verða yfir 50 viðburðir dreifðir yfir hátíðina: sýningar, tónleikar, gjörningar, og ýmsir aðrir listviðburðir. 

Við hvetjum fólk til að næla sér í útprentað kort af hátíðarsvæðinu sem dreift verður um Hamraborgina í aðdraganda hátíðarinnar, en dagskrána í heild sinni má nálgast á heimasíðu Hamraborg Festival. Sjáumst í Hamraborg!

ÁFRÁM HAMRABORG!

Hamraborg festival er styrkt af: Kópavogsbæ, Myndlistarsjóði, Barnamenningarsjóði og Landsbankanum.

____________________________

Hamraborg Festival is an annual, vibrant, week-long celebration of art and community in the heart of Kópavogur. This year’s festival is the 6th edition, and will run from August 28th to September 4th, marking the end of summer with a program of exhibitions, performances, workshops, concerts and public events – open to everyone, free of charge.

Each year, art spills from almost every corner of the neighborhood, inviting residents and visitors alike to explore and celebrate art in all its forms. One might stumble upon artworks while running errands such as picking up groceries, or choose to experience the full program by following the festival map. The festival is built in close collaboration with the local community, with many works responding to the architecture, history, and everyday life of the Hamraborg area. Throughout the years, art has spread throughout Hamraborg’s cultural venues, shop windows, cafés, offices, and public spaces, such as Catalina, Gerðarsafn, EuroMarket, Polo Vape Shop, Kópavogur Library and more. 

This year’s program opens on Friday August 28th with a concert and a celebration, followed by a Performance Night at Gerðarsafn. Throughout the festival, exhibitions and public artworks by local as well as international artists will be on display during the festival week. The program also includes a variety of events, walks and family-friendly workshops for different age groups.

Overall, more than 50 events are spread throught the festival: exhibitions, concerts, performances and various other art happenings.

Follow the detailed program on our website and pick up a printed map. See you in Hamraborg! 

GO HAMRABORG!

Hamraborg Festival is kindly supported by: Kópavogsbær, Myndlistarsjóður, Landsbankinn, Barnamenningarsjóður. 

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

19
ágú
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
19
ágú
13:00

Ævintýrafiðrildi og kort

Aðalsafn
19
ágú
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
20
ágú
20
ágú
17:00

Sumarlestrargleði

Aðalsafn | Barnadeild
21
ágú
11:00

Get together

Aðalsafn
25
ágú
26
ágú
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
28
ágú
11:00

Get together

Aðalsafn
28
ágú
04
sep
01
sep
01
sep
05
sep
08:00

Plöntuskiptimarkaður

Aðalsafn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau-sun
Lokað