Eyrún Ósk verður gestur í Hananú miðvikudaginn 2. október kl. 16:00.
Hún mun fjalla um bók sína Guðrúnarkviðu og lesa úr henni fyrir gesti.
Eyrún Ósk hefur gefið út 16 bækur, ljóðabækur, barna og unglingabækur, skáldsögur og myndskreytta barnabók. Þá hefur hún einnig skrifað kvikmyndahandrit, leikrit, smásögur og greinar í blöð og tímarit.
Bókmenntaklúbburinn Hananú! hittist í Huldustofu á 3. hæð aðalsafns.
Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!
Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.