Hananú! Dagur Hjartarson
Dagur Hjartarson verður gestur í Hananú á 2. hæð aðalsafnsins.
Hann mun lesa upp úr bók sinni Frumbyrjur og spjalla um tilurð hennar.
Léttar veitingar í boði.
Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú!
Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.














