18. des 12:15 – 12:45

Hádegisjazz FÍH

Aðalsafn | 2. hæð

Þann 18.desember klukkan 12:15 munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, Ástrún Friðbjörnsdóttir, Birgitta Sveinsdóttir og Steinunn Jónsdóttir bjóða upp á ljúfa hádegistónleika með jólalegu ívafi á Bókasafni Kópavogs. Um undirleik sér Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Á tónleikunum verða flutt bæði íslensk og erlend jólalög sem ættu að koma gestum í hátíðarskap.

Þriðja árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs. Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.

Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

 

Aðalheiður Þorsteinsdóttir lauk námi frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík og organistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hún hefur starfað sem píanóleikari, organisti, útsetjari, kennari og tölvusett nótnabækur. Hún er meðleikari við söngdeild tónlistarskóla FÍH og er einnig í námi í rytmískri kennaradeild í Listaháskólanum.

Ástrún Friðbjörnsdóttir er söngkona með bakgrunn í klassískum söng en er um þessar mundir að mennta sig í rytmískum söng. Hún hefur gefið út stuttskífuna Sandkorn og hefur einnig gefið út þrjú önnur lög. Fyrir jólin kemur út nýjasta lag hennar, jólalagið Ást og friður. Ástrún hefur sungið ýmiss konar tónlist, til dæmis flamenco, klassík og popp.

Birgitta Sveinsdóttir er 23 ára gömul tónlistarkona úr Hafnarfirði. Tónlistin hefur fylgt henni frá ungum aldri og þegar hún var aðeins fjögurra ára gömul söng hún jólalög á geisladisk með foreldrum sínum. Hún stundaði bæði píanó- og söngnám sem barn, og er nú í námi í rytmískum söng á miðstigi við Tónlistarskóla FÍH. Birgitta hefur einnig verið virk í kórstarfi og syngur í Kammerkórnum Huldur. Fyrir utan tónlistarferilinn er hún í kennaranámi í HÍ og starfar samhliða því bæði sem grunnskólakennari og söngkennari.

Steinunn Jónsdóttir er einn af forsprökkum hljómsveitanna Amabadama og Reykjavíkurdætur og hefur starfað við tónlist síðan 2011, bæði sem flytjandi og höfundur. Á sínum yngri árum lærði hún á víólu í Tónlistarskóla Kópavogs og söng í kór hjá Margréti Pálmadóttur. Í dag stundar hún nám í rytmískum söng í Tónlistarskóla FÍH. Samhliða tónlistarferlinum starfar Steinunn við tónlistardeild Fellaskóla og kennir börnum laga- og textasmíðar auk þess sem hún er blaðamaður hjá Birtingi.

Deildu þessum viðburði

01
des
23
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinsins

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
23
des
08:00

Jólafataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
03
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
04
des
15:00

Aðventukaffi Erasmus+ 

Aðalsafn | Tilraunastofan
09
des
12:15

Gömlu íslensku jólafólin

Aðalsafn | 2. hæð
10
des
17:15

Unglingabókaspjall

2. hæð
10
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
13
des
17
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

01
des
23
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinsins

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
23
des
08:00

Jólafataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
03
des
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
03
des
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
03
des
12:15

Leslyndi | Sjón

Aðalsafn | ljóðahorn 2. hæð
03
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
04
des
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
04
des
15:00

Aðventukaffi Erasmus+ 

Aðalsafn | Tilraunastofan
05
des
11:00

Get together

Aðalsafn
06
des
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
06
des
14:30

Mangateiknismiðja 11+

Aðalsafn | 3. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað