29. okt 12:15 – 12:45

Hádegistónar FÍH | Ella Fitzgerald og Louis Armstrong

Aðalsafn | 2. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Í hádeginu þann 29. október munu söngnemendur úr Tónlistarskóla FÍH, þau Birgitta Sveinsdóttir og Guðmundur Daníel Erlendsson, flytja lög eftir Ellu Fitzgerald og Louis Armstrong. 

Ella og Louis voru bandarískir tónlistarmenn sem höfðu mikil áhrif á sögu djassins. Ella var ein þekktasta djas­söngkona allra tíma og Louis var þekktur trompetleikari og söngvari með sína einstöku, djúpu rödd. Þau unnu mikið saman og gáfu meðal annars út tvær plötur saman. Samstarf þeirra varð mjög vinsælt og lögin þeirra eru enn í miklu uppáhaldi hjá djassunnendum. 

Um flytjendur:

Birgitta Sveinsdóttir er 23 ára gömul tónlistarkona úr Hafnarfirði. Tónlistin hefur fylgt henni frá ungum aldri og þegar hún var aðeins fjögurra ára gömul söng hún jólalög á geisladisk með foreldrum sínum. Hún stundaði bæði píanó- og söngnám sem barn, og er nú í námi í rytmískum söng á framhaldsstigi við Tónlistarskóla FÍH. Birgitta hefur einnig verið virk í kórstarfi og tekur þátt í ýmsum verkefnum í Kammerkórnum Huldur. Fyrir utan tónlistarferilinn er hún í kennaranámi í HÍ og starfar samhliða því bæði sem grunnskólakennari og söngkennari.

Guðmundur Daníel Erlendsson stundar nám í rytmískum söng við Tónlistarskóla FÍH og er nú kominn á sitt fjórða ár í skólanum. Ásamt því hefur hann einnig lært á píanó, klassískt og rytmískt, frá 5 ára aldri við hina ýmsu tónlistarskóla. Guðmundur er ekki einungis í námi heldur bregður hann oft á leik á tónleikum eða sýningum hér og þar, en síðastliðið sumar hélt hann fjáröflunartónleika með vinum sínum og vandamönnum og er búinn að halda ófáa tónleika með hljómsveitinni sinni Abbadís. Meðfram tónlistinni er hann útskrifaður af listabraut Verzlunarskóla Íslands og er nú í mastersnámi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hann er að læra lögfræði.

Fjórða árið í röð bjóða framhaldsnemendur af söngdeild Tónlistarskóla FÍH til ljúfra hádegistónleika á Bókasafni Kópavogs.

Tónleikarnir fara fram síðasta fimmtudag hvers mánaðar en þar stíga tónlistarstjörnur framtíðarinnar á stokk með spennandi blöndu af gömlu og nýju, lög sem öll þekkja í bland við sjaldheyrðari smelli.


Tónleikarnir standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09
nóv
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
10
nóv
11
nóv
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
11
nóv
16:30

Myndgreining

Aðalsafn | Tilraunastofa 1. hæð
11
nóv
16:00

Hananú! | Sigrún Pálsdóttir

Aðalsafn | Huldustofa
12
nóv
10:00

Krílafjör tónlistartími | Foreldramorgunn

Aðalsafn | barnadeild
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
12
nóv
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
12
nóv
16:00

Anime klúbbur fyrir 13-16 ára

Aðalsafn 3. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað