07. jan 20:00 – 21:00

Haltu mér – slepptu mér: Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni

Aðalsafn

Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.

Í þessum fyrirlestri er farið yfir mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna. Meðal annars er fjallað um eftirfarandi atriði:
-Hvað getum við sjálf gert til að tryggja góðan nætursvefn? 
-Hversu mikið þurfa ungmenni að sofa og hvaða áhrif hefur of lítill svefn?
-Uppbygging svefns, svefnstig og hlutverk þeirra. 
-Hvaða þættir hafa áhrif á svefn og svefngæði?


Dr. Erla Björnsdóttir er klínískur sálfræðingur með doktorspróf í líf og læknavísindum. Erla hefur sérhæft sig í greiningu og meðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði. Hún hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi. Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða og má þar helst nefna fyrirlestra og fræðslu um svefn og svefnvenjur fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að vera með hópnámskeið við svefnleysi. Erla sinnir kennslu og rannsóknum hjá Háskólanum í Reykjavík og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns.

Önnur erindi í Haltu mér – slepptu mér koma inn á málefni á borð við lestur, svefn og kvíða ungmenna.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

7. janúar 2025, kl. 20:00

Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni

Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnráðgjafi, fjallar um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna.

4. febrúar 2025, kl. 20:00

PISA, lesskilningur og lestur ungmenna

Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, rýnir í niðurstöður PISA könnunarinnar og fjallar um mikilvægi lesturs og að byggja upp ríkulegan orðaforða hjá börnum og ungmennum.

4. mars 2025, kl. 20:00

Hinseginleikinn og ungmenni

Sérfræðingur frá Samtökunum 78 ræðir um hinseginleikann í allri sinni mynd, segir frá hinseginfræðslu félagsins og þjónustu við hinsegin ungmenni, hvernig foreldrar geta stutt við börn sín og hvernig við getum öll tekið þátt í að uppræta fordóma í samfélaginu.

1. apríl 2025, kl. 20:00

Tölvuleikir og tölvuleikjanotkun ungmenna

Kristján Ómar Björnsson og Patrekur Gunnlaugsson, kennarar í grunnskólanum NÚ í Hafnarfirði, ræða um tölvuleiki og tölvuleikjanotkun ungmenna, hvaða leikir eru vinsælir, hvað foreldrar geta gert til að styðja börn sín og sýna áhugamáli þeirra áhuga ásamt því að stuðla að líkamlegu- og andlegu heilbrigði og félagslegum tengslum.

29. apríl 2025, kl. 20:00

Ofbeldi og vopnaburður ungs fólks

Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands, rýnir í gögn sem varpa ljósi á þróun ofbeldis meðal ungs fólks og hverjir helstu áhættuþættirnir eru. Áhersla verður lögð á að skoða hvað virkar í forvörnum, hvaða aðferðir reynast árangurslausar og hafa jafnvel öfug áhrif. Auk þess verður fjallað um hvaða inngrip hafa reynst árangursríkust til að draga úr áhættuhegðun og koma í veg fyrir frekari brot.

Deildu þessum viðburði

07
jan
20:00

Haltu mér - slepptu mér

Aðalsafn

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

02
des
07
des
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
07
des
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
10
des
11
des
12
des
16:00

Aðventutónleikar TK

Aðalsafn
13
des
11:00

Get together

Aðalsafn
17
des
18
des
18
des
17:00

Nátttröllið Yrsa

Aðalsafn

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað