01. apr 20:00 – 21:00

Haltu mér – slepptu mér: Tölvuleikir og tölvuleikjanotkun ungmenna

Aðalsafn

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.

Kristján Ómar Björnsson og Patrekur Gunnlaugsson, hjá grunnskólanum NÚ í Hafnarfirði, ræða um skipulagt íþrótta- og tómstundastarf í kringum tölvuleiki í víðu og þröngu samhengi. Allt frá samfélagslegu hlutverki slíkrar starfsemi í dag og til framtíðar yfir í tölvuleiki og tölvuleikjanotkun ungmenna, hvaða leikir eru vinsælir, hvað foreldrar geta gert til að styðja börn sín og sýna áhugamáli þeirra áhuga ásamt því að stuðla að líkamlegu og andlegu heilbrigði og félagslegum tengslum.

Kristján Ómar er stofnandi grunnskólans NÚ í Hafnarfirði sem leggur áherslu á íþróttir og vendinám. Með fjölbreyttan bakgrunn og starfsferil innan hefðbundinna íþrótta náði Kristján Ómar að vinna á eigin fordómum gagnvart rafíþróttum og hefur skapað vettvang og séð um skipulagt rafíþróttastarf í skólahúsnæði NÚ frá árinu 2020.

Patrekur Gunnlaugsson er yfirþjálfari rafíþrótta hjá Fylki og FH. Patrekur er með BSc-gráðu í sálfræði og diplómu í kvikmyndaleiklist. Hann hefur spilað tölvuleiki allt sitt líf og keppt í rafíþróttum á Íslandi. Patrekur leitast við að varpa jákvæðu ljósi á rafíþróttir og hjálpa foreldrum og ungmennum að finna heilbrigt jafnvægi í tölvuleikjanotkun.


Önnur erindi í Haltu mér slepptu mér koma inn á málefni á borð við hinseginleikann, svefn og ofbeldi ungmenna.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

7. janúar 2025, kl. 20:00
Fræðsla um svefn og svefnráð fyrir ungmenni
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og svefnráðgjafi, fjallar um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan, árangur og frammistöðu ungmenna.

4. febrúar 2025, kl. 20:00
PISA, lesskilningur og lestur ungmenna
Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, rýnir í niðurstöður PISA-könnunarinnar í lesskilningi árið 2022. Hún mun fjalla um hæfniþrep PISA og tengja þau við samfélagslega umræðu hér á landi. Þá mun hún fjalla um mál- og læsiseflandi samskipti á heimili og í skóla sem leggja grunn að djúpum lesskilningi, eins og metinn er í lesskilningshluta PISA.

4. mars 2025, kl 20:00
Hinseginleikinn og ungmenni
Edda Sigurðardóttir, fræðslustýra Samtakanna ʻ78, ræðir við foreldra um hvað er að vera hinsegin og útskýrir helstu hugtök og orðnotkun. Hún mun einnig fjalla um stöðu og áskoranir ungs fólks þegar kemur að hinseginleika, hvernig foreldrar geti verið styðjandi og hvaða úrræði standa til boða.

29. apríl 2025, kl. 20:00
Ofbeldi og vopnaburður ungs fólks
Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands, rýnir í gögn sem varpa ljósi á þróun ofbeldis meðal ungs fólks og hverjir helstu áhættuþættirnir eru. Áhersla verður lögð á að skoða hvað virkar í forvörnum, hvaða aðferðir reynast árangurslausar og hafa jafnvel öfug áhrif. Auk þess verður fjallað um hvaða inngrip hafa reynst árangursríkust til að draga úr áhættuhegðun og koma í veg fyrir frekari brot.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

10
maí
13:00

Tröllasmiðja

Aðalsafn | 1. hæð
10
maí
15:00

Töfraloftbelgurinn

Aðalsafn | 1. hæð
11
maí
13:00

Sungið fyrir dýrin

Aðalsafn
11
maí
11
maí
16:00

Rauðhetta

Aðalsafn | 1. hæð
11
maí
12:00

Sögustund | Börn lesa fyrir börn

Aðalsafn | 1. hæð
12
maí
14:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
13
maí
14
maí

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun 11. maí
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun 11. maí
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað