Á fundinum 1. febrúar tökum við fyrir bókina Þegar fennir í sporin eftir Steindór Ívarsson.
Þegar Róbert fær beiðni um að snúa aftur til Íslands frá Þýskalandi eftir fjörutíu og fjögur ár til að jarðsyngja æskuvinkonu sína Örnu neyðist hann til að horfast í augu við fortíðina og leyndarmálin sem ekki hafa þolað dagsins ljós. Uppgjör þeirra mála verður smátt og smátt óumflýjanlegt. Er rétt að rekja spor sín aftur þegar fennt hefur í þau?
Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins.
Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur!
Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs.
Hjartanlega velkomnar!