Í kringum árið 1980 varð Kópavogur vagga pönksins og Félagsheimilið í Kópavogi helsti vettvangur þess. Fræbbblarnir, Gunnar Lárus Hjálmarsson, dr. Gunni, tók virkan þátt í tónlistarsenunni í Kópavogi og leiðir hér hressa göngu um söguslóðir pönksins. Gangan hefst á Bókasafni Kópavogs.
Dr. Gunni (Gunnar Lárus Hjálmarsson) er fæddur í Kópavogi árið 1965 og byrjaði snemma að gutla í tónlist eftir að hann gerðist Bítlaaðdándi um miðjan 8. áratuginn. Ákveðin kúvending varð þegar hann heyrði í Fræbbblnum í Kópavogsbíói 1979. Hann kom fyrst fram með hljómsveit (Dordinglar) á sama stað 1980. Síðan þá hefur hann komið víða við, spilað, sungið, samið og fjallað um tónlist. Hann fagnar í ár tvítugsafmæli hljómsveitarinnar Dr. Gunni, sem hefur gert þrjár plötur, þá síðustu, Nei, ókei, í fyrra.
Menning á miðvikudögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum þar sem boðið er upp á fjölbreytt erindi, listamannaleiðsagnir og tónleika. Ókeypis er á alla viðburði í viðburðaröðinni.