Alla miðvikudaga í sumar bjóðum við upp á sumarsmiðjur kl. 15:00-17:30, þar sem Gloría bókasafnskisa verður í sviðsljósinu.
Komdu og búðu til kisugrímur, kisubókamerki, dýrafígúrur, kort, litaðu skemmtilegar söguhetjur eða taktu þátt í lista- og náttúrusmiðju Náttúrufræðistofu. Smiðjurnar verða rúllandi og mun hver smiðja bjóða upp á eitthvað af ofantöldu.
Þá verður umhverfisofurhetjan í gangi í allt sumar þar sem börn geta leyst umhverfistengd verkefni og fengið verðlaun.
Sumarlesturinn verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Lindu landnámshænu.