13. maí 16:00 – 18:00

Töfraheimur ævintýranna

Aðalsafn | 1. hæð

Athugið, þessi viðburður er liðinn.

Uppskeruhátíð sögustunda

Miðvikudaginn 13. maí kl. 16.00 ætlum við að slá til veislu á Bókasafni Kópavogs fyrir yngstu gestina. 

Bókasafn Kópavogs fékk á síðasta ári styrk frá Barnamenningarsjóði fyrir verkefnið Töfraheimur ævintýranna þar sem við þróuðum skynjunarsögustundir fyrir 0-5 ára. Í maí munum við hafa haldið opnar skynjunarsögustundir fyrir börn á aldrinum 0-5 ára í heilt ár, ásamt því að hafa tekið á móti fjölda leikskólahópa í hverri einustu viku. Við viljum fagna þessum áfanga með yngstu gestunum okkar á uppskeruhátíð sögustunda. 

Rithöfundarnir Sigrún Eldjárn, Þorvaldur Davíð og Bergrún Íris munu öll koma og lesa upp úr bókum sínum fyrir yngstu börnin. Þá verður boðið upp á teiknismiðju með Sigrúnu Eldjárn þar sem börn geta teiknað og litað uppáhalds sögupersónuna sína. Sokkabrúðsmiðju í tengslum við Sokkalabbana og vináttusmiðju í tengslum við bækur Bergrúnar þar sem börn eru beðin um að svara spurningunni Hvað er vinátta? með því, annað hvort að teikna mynd eða skrifa orð. 

Einnig verður boðið upp á skynjunarsögustund og léttar veitingar. 

Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

19
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
20
okt
21
okt
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
22
okt
23
okt
11:00

Krakkabíó

Tilraunastofa 1. hæð
22
okt
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
22
okt
10:00

Ævintýrahúsasmiðja

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
09:00

Grímusmiðja í vetrarfríi

Aðalsafn | 1. hæð
22
okt
23
okt
12
nóv
23
nóv
08:00

Sparifataskiptimarkaður

Aðalsafn | 2. hæð
01
des
19
des
08:00

Skiptimarkaður jólasveinanna

Aðalsafn | 2. hæð

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað