Sumaráhrifin og lestur

Sumarleyfi grunnskólabarna er handan við hornið og mörg þeirra farin að líta hýru auga til þess að þurfa ekki að vakna snemma, taka sig til fyrir skólann og læra heima.
Íslensk grunnskólabörn eru að jafnaði í 10-11 vikna sumarfríi þar sem þau eru laus undan stundatöflu og skólabjöllu. Þetta langa frí er eflaust mörgum kærkomið en það er hins vegar vel rannsakað að sumarfrí nemenda hefur í för með sér ákveðna afturför fyrir nám þar sem fyrri þekking og færni gleymist vegna þess að henni er ekki haldið við yfir sumartímann. Þetta eru svokölluð sumaráhrif. Hvað lestrarfærni varðar getur þessi afturför numið einum til þremur mánuðum á hverju sumri og hjá barni í 6. bekk, sem aldrei hefur lesið yfir sumartímann, getur uppsöfnuð afturför numið einu og hálfu skólaári. Sumarfrí eru vissulega nauðsynleg og hér er ekki mælst til þess að skipulögðu námi sé haldið að börnum á sumrin en góð lestrarfærni liggur til grundvallar og auðveldar nemendum allt nám svo það er ákaflega mikilvægt að henni sé haldið við yfir sumartímann. Yngstu lesararnir, eða nemendur í 1.-4. bekk, eru sérstaklega viðkvæmir fyrir sumaráhrifunum en börn sem glíma við lestrarerfiðleika,búa við litla lestrarmenningu heima fyrir eða eiga annað móðurmál en íslensku, eru einnig í áhættuhópi. Góðu fréttirnar eru þær að rannsóknir sýna einnig að ekki reynist nauðsynlegt að lesa meira en fjórar til fimm bækur yfir sumarið til að viðhalda lestrarfærninni og auðvitað leiðir mikill lestur til margs konar ávinnings fyrir skólagöngu og almenna velsæld nemenda. Sá ávinningur birtist í bættri lestrarfærni, miklum orðaforða, bættum lesskilningi, aukinni færni við ritun og svona mætti lengi telja. Og ekki má gleyma bókagaldrinum sem fær lesarann til að gleyma stund og stað og öðlast upplifun og reynslu af fyrirbærum sem eru misfjarlæg í tíma og rúmi. Við viljum minna á að útlán bókasafnanna, fyrir börn undir 18 ára aldri, eru ókeypis og að starfsfólk bókasafnanna er ávallt boðið og búið að aðstoða börn og foreldra við að finna og velja bækur sem falla að áhugasviði þeirra. Með þetta í huga vilja Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna og Menntamálastofnun hvetja nemendur og foreldra til lestrardáða í sumar með því að vera dugleg að heimsækja bókasöfnin og taka til dæmis þátt í árlegum sumarlestrarspretti eða með því að nýta sér sumarlæsisdagatal Menntamálastofnunar sem má finna hér: https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagatal_mms_sumarlestur2018.pdf
Gleðilegt lestrarsumar!

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

02
apr
03
apr
03
apr
03
apr
04
apr
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn
04
apr
10:00

Sjálfsmildi

Aðalsafn
04
apr
17:00

Vorverkin í garðinum

Aðalsafn
05
apr
13:00

Hugleiðsla

Aðalsafn
06
apr
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
08
apr
13
apr
08:00

Bókamarkaður

Aðalsafn
09
apr
10
apr

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

annar í páskum
Lokað
Þri-mið
8-18
skírdagur
11-17
föstudagurinn langi
Lokað
lau
11-17
páskadagur
Lokað

Lindasafn

annar í páskum
Lokað
Þri-mið
13-18
skírdagur-páskadagur
Lokað

Aðalsafn

annar í páskum
Lokað
Þri-mið
8-18
skírdagur
11-17
föstudagurinn langi
Lokað
lau
11-17
páskadagur
Lokað

Lindasafn

annar í páskum
Lokað
Þri-mið
13-18
skírdagur-páskadagur
Lokað
Consent Management Platform by Real Cookie Banner