Aldrei fleiri gestir á Bókasafni Kópavogs

Bókasafn Kópavogs sló aðsóknarmet í október þegar samtals yfir 20.000 gestir komu í bæði útibú þess, aðalsafn og Lindasafn, þann mánuð. Aldrei hafa fleiri gestir sótt safnið í einum mánuði frá opnun árið 1953.

„Það er sérstaklega gaman að sjá svona tölur þar sem ráðist var í miklar breytingar á barnadeild aðalsafns í byrjun þessa árs og ný og endurbætt deild opnuð á jarðhæð ásamt Náttúrufræðistofu Kópavogs og alltaf óvissa með viðtökur á svona breytingum“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.

Viðburðahald í báðum útibúum hefur verið fjölbreytt og vel sótt undanfarið og margir vikulegir og mánaðarlegir viðburðir hafa skipað sér fastan sess hjá gestum. Á dögunum hlaut safnið Nordplus styrk fyrir verkefnum tengdum fjölmenningu og hefur áherslan í viðburðahaldi verið fjölbreyttari en áður og reynt hefur verið að koma til móts við þarfir allra.

„Það er líklegast og vonandi að skila sér í fleiri gestum á safnið og er það mjög ánægjulegt,“ bætir Lísa við og segir að lokum að mikilvægt sé að allir bæjarbúar upplifi sig velkomna á safnið burtséð frá kyni, þjóðerni, stétt eða stöðu. „Hér eru öll velkomin“.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

09
jún
10
jún
12:15

Hádegisjóga í Huldustofu

Aðalsafn | Huldustofa
10
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
10
jún
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
12
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
16
jún
17
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn
17
jún
12:00

17. júní í Kópavogi

Kópavogur
19
jún
11:00

Get together

Aðalsafn
23
jún
24
jún
16:00

Náttúrulist á Jónsmessu fyrir börn

Aðalsafn | 1. hæð
24
jún
14:00

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Aðalsafn & Lindasafn

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað