Grísk matar- og menningarhátíð

Hinn 18. apríl síðastliðinn hélt Félag Grikkja á Íslandi glæsilega gríska matar- og menningarhátíð hjá okkur á Bókasafni Kópavogs. Það var líf og fjör á safninu þegar gestum var boðið að kynnast grískri menningu í gegnum mat, listir og samveru og var gleðin við völd hjá gestum jafnt sem þeim sem að hátíðinni komu. Á boðstólum var grískt matarsmakk og listamenn frá Grikklandi kynntu ólíkar listgreinar og hefðir landsins.

Fjölskyldur og börn á öllum aldri gátu tekið þátt í fjölbreyttum smiðjum þar sem áhersla var lögð á sköpun og leik. Þar var meðal annars boðið upp á grímusmiðju, pappírsbátasmiðju, smiðju þar sem unnið var með grískt letur, söguhorn og fleira. Þá var boðið upp á grískt matreiðslunámskeið og vakti það mikla lukku. Tónlist og söngur settu sterkan svip á hátíðina og gestir voru hvattir til að taka þátt í sameiginlegum söng og dansi.. Móðurmál félag um tvítyngi og Heimili og skóli voru á staðnum og fræddu gesti um starfsemi sína og mikilvægi málræktar og móðurmálskennslu.

Alls sóttu um 631 gestur hátíðina. Það var sannur miðjarhafsandi í lofti á bókasafninu og ekki var laust við að sumarsólin væri farin að skína, að minnsta kosti innandyra. Þetta er sjötta matar- og menningarhátíðin sem haldin er á safninu en bókasafnið leggur áherslu á að halda á lofti og fagna ólíkum menningum og kynna þær fyrir gestum safnsins. Áður hafa verið haldnar á safninu menningarhátíðir Venesúela, Úkraínu, Marokkó. Vestur-Afríku og Austur-Evrópu.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

02
nóv
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
03
nóv
04
nóv
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
04
nóv
04
nóv
17:00

Konunglegur fyrirlestur

Aðalsafn
05
nóv
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
05
nóv
13:00

Létt tækniaðstoð

Aðalsafn 2. hæð
05
nóv
16:00

Anime klúbbur fyrir 13-16 ára

Aðalsafn 3. hæð
07
nóv
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
07
nóv
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
09
nóv
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
10
nóv

Sjá meira

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau
11-17
sun
Lokað

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað