Í dag var dreginn út fyrsti vinningshafinn í sumarlestri Bókasafns Kópavogs.
Brynja Karen Einarsdóttir hlaut fyrsta vinninginn hjá okkur og óskum við henni innilega til hamingju!
Næst verður dregið út þriðjudaginn 16. júní.
Skráning í sumarlesturinn fer fram á vef bókasafnsins. Lestrardagbækur og happamiða má nálgast á aðalsafni og Lindasafni.