Dregið var úr bangsagetrauninni á safninu þann 28. október.
Alþjóðlegi bangsadaginn var 27. október síðastliðinn og var haldinn hátíðlegur á Bókasafni Kópavogs með getraun á báðum söfnunum í aðdraganda dagsins.
Alls tóku um 450 börn þátt í getrauninni og þökkum við þeim öllum fyrir þátttökuna. Þá voru sex vinningshafar dregnir út.
Vinningshafarnir í ár hafa allir sótt verðlaunin sín, sem auðvitað voru krúttlegir bangsar.