Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur, þýðandi og ritstjóri með meiru stappfyllti aðalsafn með erindi sínu í Leslyndi, þar sem hún fór yfir sínar uppáhaldsbækur og þá sérstaklega bækur Jane Austen. Gestir erindisins skemmtu sér vel og hefðu helst vilja sitja lengur!
Bókaástríða Silju er smitandi og hún geislar í frásögn sinni.
Takk fyrir, kæra Silja og gestir.
Við minnum svo á að næsti gestur í Leslyndi er Guðrún Eva Mínervudóttir þann 29. nóvember.