Til varnar hinni saklausu skemmtun

Á dögunum buðu menningarhúsin í Kópavogi upp á hauströlt um húsin þar sem menningarveturinn var kynntur. Að því tilefni fengum við Guðrúnu Evu Mínervudóttur til að koma og deila með gestum hugleiðingum sínum um bækur og bókasöfn.

Í tilefni af Bókasafnsdeginum í dag, þann 28. september, höfum við fengið leyfi til að birta hugvekju Guðrúnar Evu:

Eitt það skemmtilegasta sem lífið býður upp á er að tala við fólk sem les bækur. Það er líka oft gaman að tala við fólk sem les lítið sem ekkert, eða takmarkar lesturinn við rafræna greinarstúfa og fréttir. En það er alveg sérstök nautn fólgin í löngu lesmáli á pappír og því að eiga samfélag við fólk sem deilir þeim áhuga. Skiptast á bókum, tala um þær, þrasa jafnvel um þær góðlátlega. Mér finnst skemmtilegast þegar fólk er í hugaræsingi yfir bók sem því finnst að allir eigi að lesa. Næst skemmtilegast þegar einhver segir mér frá bók sem strauk viðkomandi alveg öfugt en samt var ekki hægt að leggja hana frá sér

Hin saklausa skemmtun (sem er heiti á löngu aflögðu lestrarfjelagi vestur á Ströndum) er aðgengileg í praxís. Það er að segja: Það er ekkert flókið að taka upp bók og byrja að lesa. En krefst vissulega meiri einbeitingar heldur en enn aðgengilegra myndefni og rafrænir textabútar. Eða svo ég vitni í káputexta á nýútkominni ljóðabók, þá er lestur ekki inntaka heldur þátttaka.

Nútíminn er stundum ansi tætingslegur. Sú staðhæfing þarfnast held ég engra útskýringa. Tætingurinn gerir að verkum að okkur finnst þægilegt að dreifa athyglinni enn meira með smáræði hér og smáræði þar. Stuttu myndefni þá kannski fyrst og fremst. En í öllum hraðanum er dýrmætt að geta gefið sig einhverju á vald sem fangar athyglina í langan tíma. Bækur eru lengri þráður, leiðarhnoða sem leiðir okkur dýpra og innar í okkar eigin manneskjukjarna. Innri leiðangrar eru skemmtilegustu leiðangrarnir, vil ég meina. En vegna þess að við viljum vera praktísk og eigum til að tortryggja það sem á eingöngu að vera skemmtilegt ætla ég að gamni mínu að halda uppi vörnum fyrir hina saklausu skemmtun:

Lestur er róandi fyrir taugakerfið. Skjánotkun truflar svefn og einbeitingu en lestur er miklu minna áreiti og meira í áttina að innhverfri íhugun. Svona næstum-því-hugleiðsla.

Ímyndunarkrafturinn vaknar og þjálfast við lestur. Allt sem við sköpum byrjar á hugmynd sem við ímyndum okkur. Svo það má ganga út frá því að lestur auki sköpunarmátt. Sköpun er ekki frátekin fyrir listamenn og uppfinningamenn. Hún er forsenda gjöfuls lífs.

Lestur er þjálfun í að setja okkur í annarra spor. Fólk sem les mikið á auðveldara með að sýna hluttekningu, samkvæmt einhverjum rannsóknum sem ég las um. Þetta á við um alla sagnalist. Líka bíó, sjónvarp og leikhús. En bóklestur hefur þarna algera sérstöðu. Hann er lang áhrifaríkasta þjálfunin.  

Nú er fólk farið að hlusta mikið á bækur og getur þannig lesið mun meira, því hægt er að hlusta á meðan ekið er milli staða, eða við húsverkin. Það er ekkert nema stórkostleg viðbót. En ég veit til þess að margir hlustendur lesa líka á pappír. Kannski á kvöldin fyrir svefninn. Því það lætur þeim líða svo vel. Sálfræðingur sem ég þekki tengir það við EMDR – sem er áhrifaríkasta áfallastreitumeðferðin. Í þeirri meðferð er fólk látið flakka milli hægri og vistri með augunum. Það hefur bein áhrif á heilann og losar um stíflur í huganum. Allt sem við gerum hægri-vinstri hefur góð áhrif á heilann. Hjóla, mála hægri vinstri, tromma hægri vinstri. Fyrrnefndur sálfræðingur er með athyglisbrest og á auðveldara með að hlusta en að lesa með augunum. Svo hann situr með bók í fanginu og hlustar á hana á meðan hann les stafina – til að meðtaka EMDR áhrifin ásamt orðunum. Þar að auki vill hann meina að sálrænn vandi felist yfirleitt í því að fólk eigi erfitt með að sjá fyrir sér leiðina út úr andlegum ógöngum. Þá kemur ímyndunarkrafturinn aftur til sögunnar.

Svo það er ekki bara gaman heldur líka hollt að lesa. En ég minni einnig á að við sem þjóð elskum bækur.  Við gleymum því kannski stundum en það er samt alveg inngróið í okkur. Merkustu fornmunir okkar eru bækur. Bækur voru dýrar og þess vegna skiptumst við á þeim. Þær voru lánaðar á milli bæja og ræddar yfir kaffinu. Stofnuð voru lestrarfjelög. Bóksafn er ekkert annað en stórt lestrarfjelag þar sem fólk kemur saman til að stunda hina saklausu skemmtun. Almenningsbókasöfn eru stór og mikil yfirlýsing um að bækur séu mikilvægar og eigi að vera öllum aðgengilegar. Þau eru alþýðleg hámenning með lítilli fyrirhöfn og litlum tilkostnaði, svona miðað við ávinninginn.

Þegar ég var lítill lestrarhestur var ég látin draga vandlega innpakkaðar bækur á snjóþotu á bókasafnið og vaða síðan snjóinn heim með nýjan farm. Það var ögn nútímalegri útgáfa af því að lána bækur á milli bæja. Þvílíkar allsnægtir! Sem betur fer elskar fólk ennþá bókasöfn. Það fer ekkert á milli mála, því þar er alltaf nóg að gera. Ég vil að þau séu opin allan daginn og helst fram á kvöld.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

28
sep
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
29
sep
29
sep
12:15

Af hverju hlæjum við?

Aðalsafn | 2. hæð
30
sep
14:00

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Aðalsafn | handavinnuhorn
30
sep
16:00

Skynjunarsögustund

Aðalsafn | barnadeild
30
sep
16:00

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Aðalsafn | Huldustofa
01
okt
10:00

Foreldramorgunn

Aðalsafn
01
okt
15:00

Lesið á milli línanna

Aðalsafn | Handavinnuhorn
03
okt
11:30

Tala og spila

Aðalsafn
03
okt
11:30

Lesið fyrir hunda

Aðalsafn
05
okt
15:00

Bróderíklúbburinn

Lindasafn
06
okt

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað

Aðalsafn

mán-fös
8-18
lau-sun. 30. ág.
11-17

Lindasafn

mán-fös
13-18
lau
11-15
sun
Lokað